135. löggjafarþing — 39. fundur,  7. des. 2007.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

90. mál
[18:57]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég vil koma því að við þessa umræðu að þannig háttar til með málið að þingmaður okkar vinstri grænna í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, hv. þm. Atli Gíslason, skrifar undir nefndarálitið með fyrirvara. En þannig tókst til við 2. umr. að hann var tepptur þegar málið var tekið fyrir og náði ekki að koma útskýringum eða útlistunum á þeim fyrirvara á framfæri. Ég tek að mér að gera það fyrir okkar hönd.

Við styðjum málið og leggjumst ekki gegn afgreiðslu þess nema síður sé því að málið horfir á sinn hátt til réttrar áttar, þ.e. verið er að taka inn ríkari heimildir, að vísu inn í lög um veiðar í fiskveiðilandhelginni, til verndunaraðgerða og einkum og sér í lagi gagnvart hafsbotninum. Það er gamalt baráttumál okkar vinstri grænna og hefur lengi verið. Við höfum flutt um það þingmál og þingmenn ýmsir á fyrri tíð. Má þar nefna margvíslegan tillöguflutning Hjörleifs Guttormssonar sem laut að málum af þessu tagi, bæði um rannsóknir á hafsbotninum og lífríki hans á grunnsævinu og um aðgerðir og nauðsyn þess að vernda hafsbotninn.

Við höfum endurtekið flutt um þetta tillögur nú á síðustu árum og þær hafa t.d. gengið út á að auka möguleika til verndunaraðgerða á kóralsvæðum og öðrum svæðum þar sem um sérstæðar jarðmyndanir eða sérstakt lífríki er að ræða. Þar má t.d. bæta við háhitasvæði á hafsbotni sem mörg hver eru stórmerkileg, í þeim þrífst sérstakt og sjaldgæft lífríki, hverastrýtur og kóralsvæði og fleira í þeim dúr.

En fyrirvari okkar við þetta mál lýtur einkum að því að ýmsar fagstofnanir, þá einkum og sér í lagi stofnanir á sviði umhverfismála, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands, leggja til að úr því að við þessum málum er hreyft á annað borð verði það gert með svolítið metnaðarfyllri hætti ef svo má segja. Umhverfisstofnun leggur t.d. til í umsögn sinni um málið að styrkja þurfi lögin enn frekar og æskilegt væri að skýrari verndunarsjónarmið og sjálfbær nýting kæmu inn til að styðja við viðleitni til að vernda það sem vernda á með lagaákvæðunum.

Umhverfisstofnun leggur til að 1. gr. laganna verði breytt þannig að inn komi þau sjónarmið að nýta beri nytjastofna á sjálfbæran hátt og vernda beri viðkvæm hafsvæði, þar með talið hafsbotninn, og það fái aukið vægi. Þannig mætti hugsa sér að 1. gr. laganna um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands orðaðist svo að tilgangur laga þessara væri að stuðla að viðgangi, hagkvæmri og sjálfbærri nýtingu nytjastofna og vernd viðkvæmra hafsvæða þar með talið hafsbotnsins innan íslenskrar fiskveiðilandhelgi og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.

Eins er þar talað um að æskilegt væri að beita þá fremur náttúruverndarlögum, t.d. 54. gr. náttúruverndarlaga, um friðlýsingu náttúruminja í hafi, en ekki bara friða þau í sérlögum sem lúta að fiskveiðimálum eða sjávarútvegsmálum.

Náttúrufræðistofnun er á svipuðum nótum í umsögn sinni. Þó að þar sé að vísu mælt með samþykkt frumvarpsins óbreytts er enn fremur tekið fram, með leyfi forseta:

„Náttúrufræðistofnun telur eðlilegt og í takt við þróun í nágrannalöndum að auka friðlýsingar í hafi á grunni náttúruverndarlaga frekar en laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands sem eru fyrst og fremst nýtingarlög.“

Þetta er gamalkunnug umræða og þekkt, ég vil ekki kalla það landamæradeilu en jaðarmál. Spurningin er hvað á að liggja í nýtingarlögum á vegum atvinnugreinanna sjálfra og hvað á að liggja í náttúruverndarlögum. Ætli stærsta og fyrirferðarmesta mál af þessu tagi í dag sé ekki það sem fram undan er varðandi vatnsvernd annars vegar og nýtingu vatns hins vegar. Lagabálkar hliðstætt settir í raun en annar er á forræði umhverfisráðuneytis og lýtur að vatnsvernd en hinn er á forræði iðnaðarráðuneytis og horfir meira á nýtingarþáttinn.

Þau landamæri eru kannski ekki nógu ljós þarna hvað sjávarútveginn áhrærir og að okkar mati þarf tvímælalaust að huga að því að náttúruverndarlög fái aukið vægi og horft sé til verndarinnar af þeim sjónarhóli og hún m.a. styrkt jöfnum höndum og ekki síður í gegnum náttúruverndarlög en nýtingarlög af þessu tagi. Þó er það góðra gjalda vert sem hér stendur til að gera í sjálfu sér og við styðjum það þar af leiðandi.

Að sjálfsögðu hefði komið til greina af okkar hálfu að flytja breytingartillögur við málið í þessa veru en við afréðum að gera það ekki heldur láta þennan fyrirvara nægja og koma sjónarmiðum okkar á framfæri í leiðinni. En við áskiljum okkur allan rétt til að skoða þetta áfram og eftir atvikum leggja til á þessu breytingar í fyllingu tímans.