varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá Þórunni Sveinbjarnardóttur, 8. þm. Suðvest., um að hún sé á förum til útlanda í opinberum erindagerðum og geti því ekki sótt þingfundi á næstunni. Annar varamaður flokksins í kjördæminu, Tryggvi Harðarson, fyrrverandi bæjarstjóri, tekur sæti hennar á Alþingi í dag en fyrsti varamaður flokksins í Suðvesturkjördæmi, Guðmundur Steingrímsson, hefur boðað forföll. Kjörbréf Tryggva Harðarsonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.
[Tryggvi Harðarson, 8. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]