135. löggjafarþing — 40. fundur,  10. des. 2007.

fjárframlög til heilbrigðisþjónustu.

[15:10]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra segir að ekkert hafi breyst. Það eru orð að sönnu. Þrengt hefur verið að heilsugæslunni á undanförnum árum. Á undanförnum átta árum hefur verið skorið niður við Landspítala að raungildi. Ríkisendurskoðandi talar um aukna framleiðni þar á bæ sem á mannamáli þýðir aukið álag á starfsfólkið og nú hafa forsvarsmenn Landspítalans sagt: Við getum ekki meir. Við þurfum a.m.k. 800–1.000 millj. kr. til að geta haldið óbreyttri þjónustu. Það er því rétt hjá hæstv. heilbrigðisráðherra að í reynd er þetta framhald af þeirri stefnu sem fylgt hefur verið á undanförnum árum og við hæfi að fyrrv. hæstv. heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, hefji umræðuna, eða hitt þó heldur.

En, hæstv. forseti, við stöndum engu að síður á tímamótum. Við stöndum nefnilega á pólitískum tímamótum vegna þess að niðurskurðurinn nú er af pólitískum rótum runninn. Það er verið að skerða framlög til heilbrigðisþjónustunnar, til heilsugæslunnar, til sjúkrahúsanna í landinu til að greiða götu einkareksturs. [Hávaði í þingsal.] Þetta er staðreynd og síðar í dag tökum við til umræðu frumvarp frá hæstv. heilbrigðisráðherra sem gerir ráð fyrir því að komið verði á fót sérstakri verslunarmiðstöð fyrir sjúkdóma, fyrir heilbrigðisþjónustu. Ég er ansi hræddur um að það muni kalla á nokkuð langa og ítarlega umræðu en ég vek athygli á því og ítreka að við stöndum á pólitískum tímamótum.