3. umr. fjárlaga.
Herra forseti. Það bregður svo við að ég kveð mér hér hljóðs til þess að hrósa fundarstjórn forseta. (Gripið fram í.) Ég vil bara láta það koma hér fram að ég tel það rétta ákvörðun hjá hæstv. forseta að fresta 3. umr. fjárlaga til miðvikudags. Skjöl eru ekki tilbúin og verða væntanlega ekki fyrr en seint í kvöld og það er engin ástæða heldur til að setja tímapressu á það, nær að starfsfólk Alþingis geti gengið frá þeim með eðlilegum hætti á dagvinnutíma.
Ég tek þetta mál hér upp vegna þess að nákvæmlega sömu aðstæður voru uppi deginum áður eða kvöldinu áður en hefja átti 2. umr. um fjárlög. Þá tókum við það mál hér upp eins og ég geri ráð fyrir að mönnum sé í minni og óskuðum eftir nákvæmlega því sama, að 2. umr. fjárlaga yrði frestað um sólarhring þannig að þingmenn fengju eðlilegan tíma til að undirbúa sig undir umræðuna eftir að gögn málsins lægju fyrir og þeim hefði verið dreift. Þá var að vísu ekki orðið við þeirri beiðni en nú er hins vegar sú afstaða að við þessar aðstæður sé eðlilegt að gera breytingar á starfsáætlun Alþingis að þessu leyti og fresta umræðunni um einn dag. Þó að kannski sé aldrei sérstaklega eftirsóknarvert að gera þar breytingar á eru öll efnisrök til þess að gera það nú og ég fagna þeirri ákvörðun forseta.
Frestir sem þingsköpin veita eru m.a. einmitt ætlaðir af þessum ástæðum til að tryggja að gögn liggi fyrir og þingmenn geti gengið til umræðna og atkvæðagreiðslu um mál með eðlilegum fyrirvara og aðdraganda. Þessa fresti, vel að merkja, er reyndar hægt að upphefja með afbrigðum eins og kunnugt er. Nú stendur einmitt þannig á að það er svo sterkur meiri hluti hér á Alþingi að hann getur veitt sjálfum sér afbrigði og við þær aðstæður er sérstaklega mikilvægt að forseti fari af sanngirni og hófsemi með sitt mikla dagskrárvald. Það tel ég að sé gert í þessu tilviki. Ég fagna því og vona að þetta viti á það að almennt sé að vænta meiri vilja til samstöðu og sanngirni hér í sambandi við málefni þingsins á komandi vikum og mánuðum og árum.