fjárlög 2008.
Herra forseti. Ég vil fyrst taka það fram að umræddar breytingar sem eru gerðar núna á milli 2. og 3. umr. varðandi safnliði sem fjárlaganefndin leggur til eru mjög óverulegar. Um er að ræða, má kannski segja, ákveðnar leiðréttingar, betur sjá augu en auga í þeim efnum og margt kom hér upp við 2. umr. eða eftir hana þar sem við fengum ábendingar um hitt og þetta, bæði frá hv. þingmönnum svo og öðrum.
Ég skal hins vegar afla þessarar sundurliðunar varðandi safnliði innan ráðuneytanna og tilgreina þá vonandi hér í síðari ræðu minni eða þá stuttu andsvari síðar í dag. Ég læt vinna það hér í dag á fjárlaganefndarsviðinu. Það er í sjálfu sér athyglisvert að taka þetta saman því að þetta liggur, má kannski segja, hér og þar í frumvarpinu.
Hvað varðar aðra athugasemd um húsafriðunarverkefni eða fornleifaverkefni eða slíkt vil ég bara vísa til þess sem ég sagði fyrr í ræðu minni, hér stígur fjárlaganefndin og vonandi þingið ákveðið skref með því að styrkja rekstrargrunn Þjóðminjasafnsins til að mæta þeim umsýslukostnaði sem safnið verður fyrir.
Ég vil einnig nefna að ég vil horfa á þetta í kannski nýju ljósi og þá ræða hlutverk stjórnsýslustofnananna og þá hlutverk annarra í þessum efnum, jafnvel hvert hlutverk sjóða er þegar kemur að verkefnum eins og hér er um rætt.