135. löggjafarþing — 42. fundur,  12. des. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[14:25]
Hlusta

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Bjarni Harðarson) (F):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir minnihlutaáliti 2. minni hluta fjárlaganefndar og er nú svo sem stórt nafnið en játast verður að í þeim minni hluta er nú ekki fleirtala einstaklinga heldur er ég einn í honum, enda minni hluti stjórnarandstöðu ekki fjölmenn þar sem við skipum aðeins þrjá menn í nefndinni.

Ég vil byrja á því að þakka fyrir afskaplega gott og ánægjulegt samstarf á þessu hausti innan fjárlaganefndar. Ég þakka sérstaklega fyrir — og hef reyndar vikið að í fyrri umræðu líka en hef enn ástæðu til að endurtaka það vegna góðra samstarfsdaga síðan við ræddum málin síðast í þingsölum — þau vinnubrögð, sanngirni og jákvæðu umræðustjórnmál sem tíðkast vissulega innan fjárlaganefndarinnar um þau mál sem hún hefur sérstaklega með að gera. Eins og bæði þing og þjóð vita eru það ekki stóru línurnar í fjárlagagerðinni, það eru ekki stóru línurnar í hagstjórninni sem koma þar raunverulega til ákvarðana en aftur á móti koma þar til ákvarðana mörg minni háttar mál sem eru mjög mikilvæg. Þau skipta mjög miklu máli fyrir byggðirnar og hin þörfu menningarverkefni sem þar eru unnin. Ekki er víst að í sögunni muni stóru línurnar endilega vera mest áberandi þegar litið er til baka. Þá mun kannski ekki síður verða horft til þess hvað gert var í því smáa því að oft er þar um að ræða einstök framfaramál, einstök málefni sem snerta björgun menningarverðmæta.

Ég get ekki alls kostar tekið undir með þingmönnum sem hér ræddu í andsvörum, hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur og hv. þm. Pétri H. Blöndal, um safnliðina og það ráðslag að fjárlaganefnd hafi möguleika á að veita fé í litla liði. Í því samhengi vék hv. þm. Pétur Blöndal að því að ef við værum að stjórna stóru hlutafélagi í Bandaríkjunum væri það ekki gert með þessum hætti. Það er örugglega alveg rétt en við erum ekki að stjórna hlutafélagi í Bandaríkjunum og sjálfur hef ég engan áhuga á því að eyða dögum mínum í að stjórna slíku félagi. Ég væri þá frekar við mína bóksölu austur í sveitum.

Við erum að stjórna þjóðríki þó að umfang þess sé kannski ekki meira en í mörgum hlutafélögum og mjög mikilvægt er að hv. Alþingi hafi möguleika á hvorutveggja, að móta línurnar og koma inn í litla liði. Þótt við viljum auðvitað geta sett sem allra mest í reglubundinn og ákveðinn farveg er það bara ekki svo að allt verði steypt í mót.

Mér var sérstaklega hugsað til þess að undir orðum hv. þm. Péturs Blöndals — sem ég sakna að hafa ekki hér í salnum til umræðu við mig en hann er vísast með kveikt á umræðunni á skrifstofu sinni. Hann vék sérstaklega að því að samkvæmt breytingartillögum sem liggja fyrir keypti ríkið nú safn og ræki hitt og þetta.

Tilfellið er að upp koma einstök verkefni sem nauðsynlegt er að sinna með þessum hætti af því um þau verður aldrei neinn sérstakur sjóður eða sérstök stofnun sem getur tekið þau til umfjöllunar. Þá þarf hið pólitíska vald, sem getur tekið pólitíska ábyrgð á ákvarðanatöku sinni, að geta gripið inn í.

Ég er afskaplega ánægður með hvernig samkomulag og sanngirni var gætt við alla umfjöllun innan fjárlaganefndar. Þótt ég hafi ekki, frekar en nokkur annar, séð öll þau verkefni sem ég bar fyrir brjósti verða að veruleika þá skiptir máli að unnið sé af sanngirni og heilindum og það tel ég svo sannarlega hafa verið gert í fjárlaganefnd.

Þá er nú lokið loftungu þeirri sem ég hugðist hafa yfir um breytingartillögur og fjárlagafrumvarpið í lokaumræðu þingsins og hefur það tekið nákvæmlega fimm mínútur. Ég býst við að gagnrýni mín muni taka eilítið lengri tíma. Ég mun þó reyna eftir föngum að temja mér stuttar ræður eins og er stefnan nú í þinginu. (Gripið fram í.)

Það sem ég tel einkenna fjárlögin sem eru til umfjöllunar er að allar meginlínur í þeim, hin meginpólitíska stefna, er afar vond og hefur í meðförum á þessu hausti fyrst og fremst versnað. Af þeirri ástæðu er hægt að hvetja til þess að þingið drífi í að samþykkja fjárlögin vegna þess að sýnt er að þessi þingmeirihluti mun ekki ætla að bæta um. Hann hefur ekki tekið neinu tiltali á haustþingi þótt bent hafi verið á missmíðina sem er á þessari vegferð, bæði af stjórnarandstöðu og af hinum ýmsu aðilum í samfélaginu, missmíði sem felst m.a. í að upp undir 20% hækkun fjárlaga skuli vera á milli ára. Fjárlögin nema nú stærri hluta af vergri landsframleiðslu en verið hefur frá árinu 1993 og hefur samt mikill hagvöxtur aukist verulega á þeim tíma.

Ef við horfum til sögunnar eru fjárlögin í raun og veru ekkert annað en ávísun á efnahagslega óstjórn, óðaverðbólgu og fjárlögin eru vaxtahvetjandi. Þau hafa þegar kostað heimilin í landinu hærri húsnæðisvexti. Þegar hefur verið sendur reikningur fyrir fjárlögunum beint inn á heimilin í landinu með hærri afborgunum af húsnæðislánum og í þeim er hriplek áætlanagerð um þá ringulreið sem lagt er upp með innan Stjórnarráðsins.

Í fjárlögunum er opnuð ákveðin leið fyrir einkavæðingu heilbrigðiskerfisins með heimildarákvæði 75 sem við framsóknarmenn óttumst mjög að þeir sem nú fara með heilbrigðismál kunni þar ekki með að fara. Í fjárlögunum eru fölsk kosningaloforð um framkvæmdir sem aldrei verður hægt að standa undir og á það sérstaklega við um samgöngumál þar sem reitt er miklu hærra en raunhæft er.

Að lokum eru með fjárlögunum innsigluð mörg verk sem þingið á ekkert með að innsigla, á ekkert með að leggja blessun sína yfir. Það eru verk sem vinur minn Halldór heitinn í Stekkholti hefði sagt um að væru „hálfförðuleg“ en hann tók aldrei sterkara til orða um það sem honum mislíkaði.

Inni í því eru hlutir eins og KADECO-málið sem Alþingi leggur hér blessun sína yfir með samþykki þessa plaggs sem liggur frammi, með samþykki í 3. umr. Ég tel mjög misráðið að gera það. Það er reyndar ekki í fyrsta skipti sem Alþingi hefur verið notað til þess að blessa það sem illa þolir dagsljósið í stjórnarháttum hins valdþreytta Sjálfstæðisflokks og nægir þar að nefna mál eins og Grímseyjarferju, Baldursmál á Breiðafirði og fleira og fleira.

Hv. formaður fjárlaganefndar, alþingismaður Gunnar Svavarsson, vék að því að þegar jólin gengju í garð yrði bráð af stjórnarandstöðunni svo hún sæi, líkt og skaparinn sjálfur á sjötta degi, að þetta væri nú allt saman harla gott. Ég hef ekki alveg sannfæringu fyrir því að sú mynd blasi við okkur á jólum. Ég er miklu hræddari við að strax á jólum hafi slegið á gleði stjórnarmeirihlutans yfir þeim fjárlögum sem samþykkt eru nú á miðri aðventu vegna þess að fjárlögin eru ávísun á óstöðugleika og við sjáum þess þegar merki og við munum sjá þess enn frekar merki á síðustu vikum þessa árs og fyrstu mánuðum þess næsta.

Það er mjög mikilvægt, eins og hv. formaður vék að, að umræða um fjárlög sé málefnaleg, að umræða um fjárhag ríkisins sé málefnaleg og að þar taki menn rökum. Þess vegna er grætilegt að fylgjast með því á þessu hausti að farið er fram með fjárlög með þeirri 20% aukningu ríkisútgjalda sem ég vék að. Það gerist þrátt fyrir ráð allra í samfélaginu, þrátt fyrir að hvarvetna í samfélaginu komi fram krafa hagfræðinga, ekki bara í okkar samfélagi heldur meðal þeirra erlendu eftirlitsstofnana og erlendu hagfræðinga sem fylgjast með hagkerfi okkar. Í raun er alveg sama hvort við horfum á Efnahags- og þróunarstofnunina, hvort við horfum á hið virta fyrirtæki Standard & Poor's, stöndugir og fátækir, eða önnur fyrirtæki sem metið hafa lánshæfi og annað varðandi okkar hagkerfi. Alls staðar er krafan sú sama, að gætt sé aðhalds.

Ef litið er til þess hverju núverandi stjórnarflokkar lofuðu í aðdraganda kosninga var það líka eitt af því sem lofað var og ekki síst af Samfylkingunni sem talaði digurbarkalega um að gæta þyrfti aðhalds á þeim miklu þenslutímum sem nú eru. Þjóðin má búa við að skilaboð fjármálaráðuneytisins og skilaboð hins sterka stjórnarmeirihluta til allra þessara aðila, allra þessara fræðimanna — það á líka við um greiningardeildir banka og vitaskuld ekki síst við um Seðlabanka Íslands.

Allir þessir aðilar fá á sig að þeir hafi ekkert vit á þessu, þeim komi það ekki við, það sé nöldur og söngur. Að vísu hefur heldur dregið úr því að hæstv. fjármálaráðherra standi í því að svara matsfyrirtækjunum eða, með óbeinum hætti, Seðlabanka Íslands. Ekki er skárra að virtir hagfræðingar sem gagnrýna hagstjórnina hér séu ekki virtir viðlits. Ég sakna þess sem vikið var að hjá hv. formanni fjárlaganefndar, að fram fari málefnaleg umræða. Það er ekki málefnaleg umræða að hagfræðistofnanir og matsfyrirtæki séu ekki talin svaraverð.

Reyndin er sú að íslensk þjóð lifir við svipaðar aðstæður og heimilisfólk þar sem hjónabandið er í molum, þar sem hjón geta ekki komið sér saman um neitt nema það eitt sem alltaf er hægt til að reyna að sparsla í sambandið, að eyða peningum. Það eina sem stjórnarflokkarnir geta komið sér saman um er að eyða meira. Við sáum að jafnvel við 1. umr. fjárlaga komu þegar fram sterk varnaðarorð mjög margra í samfélaginu um að hér væri of hátt reitt. Eina svar stjórnarinnar var að gefa enn betur í, gefa enn meira á garðann.

Auðvitað er það svo að þegar veitt er fé til þjóðþrifamála er erfitt fyrir stjórnarandstöðu að standa fast á móti. Ég hef samt sem áður sagt í ræðustóli og segi það enn að ég tel að bíða hefði mátt með þessar aðgerðir. Ég tel reyndar margt af því sem gert er í málefnum eldri borgara og öryrkja vera eitthvað sem ekki átti að vera í fyrsta sæti í forgangsröðinni vegna þess að í þeim stóra pakka ... (Gripið fram í.) Nú langar mig að víkja sérstaklega að því hvað vera hefði átt í fyrsta sæti því að ég heyri hér kallað frammi í sal og það er vinalegt að fá frammíköll í ræðum sínum. Það er einmitt það sem ég sakna að hagfræðingarnir í samfélaginu hafi ekki fengið í sínum athugasemdum. Þeir fá helst engin frammíköll frá stjórninni í samfélagsumræðunni. Þeir fá ekkert svar.

Það sem vera átti í fyrsta sæti varðandi úrbætur handa fátækum voru auðvitað úrbætur handa þeim sem enga aðra tekjumöguleika hafa og enga hafa sér til aðstoðar inni á heimilunum. Í þessum aðgerðum göngum við að stórum hluta í þá átt, sem er vissulega mikið mannréttindamál, að gera hvern einstakling sjálfstæðan gagnvart tryggingakerfinu en það er ekki það brýnasta. Það brýnasta er að gera grunnbæturnar þannig að hægt sé að framfleyta sér á þeim.

Við höfum áfram hóp — sem fer minnkandi með öflugra og öflugra lífeyriskerfi í samfélaginu sem betur fer en hann er samt til. Við höfum hóp í samfélaginu sem ekki hefur við neitt að styðjast nema strípaðar bæturnar. Fyrir þann hóp gerum við ekkert. Það tel ég mjög miður. Það eina sem ég fagna heils hugar í aðgerðunum nú er hækkun vasapeninganna því að þar komum við til móts við þá sem allra bágast eiga þótt vissulega sé það fólk sem fær séð fyrir öllum nauðþurftum. Það eru þó ákveðin mannréttindi að hafa viðunandi vasapeninga fyrir fólk sem þarf síðustu æviárin, eða jafnvel ævina alla, að dvelja inni á stofnunum eða heimilum.

Það er í rauninni grátlegt að fylgjast með því í þessu ósamstæða hjónabandi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hvernig öll ábyrgðin í ríkisfjármálum virkar á mig eins og hún sé ættuð innan úr Samfylkingunni en aðgerðirnar í félagsmálum eins og þær séu ættaðar úr Sjálfstæðisflokknum þar sem skilningurinn á slíku hefur alltaf verið afar lítill.

Mig langar í því sambandi að vitna í nýlega ræðu sem hér var flutt af hv. þm. Pétri H. Blöndal og verð enn og aftur að lýsa yfir hryggð minni yfir að hann skuli ekki vera viðstaddur þar sem ég geri hans orð enn að umfjöllunarefni. Hv. þingmaður segir í umræðu hér á Alþingi fyrir tæpri viku, með leyfi forseta:

„Tekjutryggingin var tekin upp 1971 og þar áður, löngu áður, var tekið tillit til tekna maka við úrskurð um lífeyri. Alla tíð hefur verið tekið tillit til tekna maka nema núna á að fara að hverfa frá því og ég er mjög ánægður með að menn hverfi frá þeim kratisma og þeirri félagshyggju sem felst í því að taka tillit til tekna maka.“

Var þetta brýnasta atriðið í félagslegri aðstoð í samfélaginu, herra forseti?

Ég tel mig að nokkru hafa svarað því frammíkalli sem fram kom áðan en lýsi mig fúsan til að fara betur í umræðuna síðar í dag og mun nú fara að stytta mál mitt.

Ég mun síðar í dag fjalla sérstaklega um þann hluta viðbótartillagnanna sem lúta að málefnum KADECO á Keflavíkurflugvelli en þar tel ég að meiri hluti fjárlaganefndar sé á miklum villigötum og að röðun í stjórnsýslunni sé röng. Auk þess tel ég margt þar mjög athugavert þótt ég telji líka, og geti fyllilega tekið undir þau orð sem fallið hafa fyrr í dag, að vissulega hefur tekist vel til með uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli.