fjárlög 2008.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarna Harðarsyni fyrir nefndarálit hans og yfirferðina á því. Ljóst er að Framsóknarflokkurinn hefur komið þannig innstilltur í fjárlagaumræðuna að hann telur að ekki beri að auka ríkisútgjöld og hv. þm. Bjarni Harðarson hefur vissulega farið yfir það hér. Eins má kannski segja að Framsóknarflokkurinn hafi ekki komið fram með eina eða neina tillögu til aðgerða sem leiðir af sér lækkun á ríkisútgjöldum. Eina tillagan sem framsóknarmenn standa að við umræddar breytingartillögur er ákvæði í 7. gr. heimildar sem hefur lengi verið rætt á þinginu og síðan styrking á háskólarannsóknarstarfsemi upp á 75 milljónir.
Þingflokkur Vinstri grænna er með tillögur sem greint var frá við 2. umr. upp á tæpa 14 milljarða til aukningar en vissulega eru skattar síðan hækkaðir á móti. Ég skil nefndarálit hv. þm. Bjarna Harðarsonar þannig að við eigum að vera á bremsunni en samt sem áður er ekki sagt hvað skera eigi niður. Getur hv. þingmaður farið betur yfir það sem Framsóknarflokkurinn hefur breytt (Forseti hringir.) í þeim efnum frá því sem var sl. vor?