fjárlög 2008.
Herra forseti. Það líður að lokum afgreiðslu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2008 ef að líkum lætur og er komið nokkuð inn í 3. og síðustu umræðu um málið. Ýmislegt vekur athygli í því sambandi, bæði það sem er í frumvarpinu en eins og stundum áður kannski ekkert síður það sem ekki er í því. Gefur það tilefni til að ræða hvort tveggja lítillega. Ég ætla ekki að endurtaka margt af því sem ég sagði í allítarlegri ræðu við 2. umr., ég fór þá m.a. talsvert yfir efnahagslegar kringumstæður við þessa fjárlagagerð og vísa fyrst og fremst til þess. Þó eru nokkur atriði sem segja má að komið sé að einhverju leyti nýtt ljós á nú í ljósi nýjustu upplýsinga úr hagkerfinu og nýjustu hagtalna sem okkur hafa borist í hendur.
Nýjar verðbólgumælingar hafa komið fyrir síðasta mánuð og greiningaraðilar hafa verið að fjalla um horfurnar og kannski er ástæða til að staldra aðeins við það sem nýtt er í þeim efnum. Þannig er t.d. í höndum okkar núna spánný verðbólgumæling sem færir okkur þau tíðindi að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,68% í desember frá fyrra mánuði. Það er nokkru meira en flestir höfðu spáð. Þetta þýðir að tólf mánaða verðbólga mælist nú rétt tæp 6%, 5,9% samanborið við 5,2% í nóvembermánuði, og ekki geta það talist sérstaklega góðar fréttir. Það sem er kannski alvarlegra er að ef horft er fram hjá áhrifum skattalækkana í upphafi árs má segja að tólf mánaða verðbólga mælist hátt í 8%. Undirliggjandi verðbólga er því talsvert meiri en þetta ef eitthvað er, ef ekki hefðu komið til beinar stjórnvaldsaðgerðir til að ná niður verðlagi í formi lækkunar á matarskatti. Og verðbólgan hækkar, verðbólguhorfur til skamms tíma eru sem sagt þannig að undirliggjandi tólf mánaða verðbólga, þessi 7,7% sem ég áður nefndi, er að færast fjær verðbólgumarkmiði Seðlabankans núna mánuð eftir mánuð, undirliggjandi verðbólga stefnir í burtu frá hinu opinbera verðbólgumarkmiði.
Þessi þróun hlýtur auðvitað, miðað við óbreytta stöðu eða óbreytt viðhorf, óbreytta nálgun t.d. Seðlabankans, að auka fremur en draga úr líkunum á áframhaldandi aðgerðum af hans hálfu. Ef Seðlabankinn ætlar ekki að taka einhverja kúvendingu í aðferðafræði sinni, ef ríkisstjórnin hefur engin ný skilaboð fram að færa til Seðlabankans hlýtur frekar að vera von á áframhaldandi aðgerðum af þeim toga sem Seðlabankinn hefur verið að beita heldur en hitt. Ef viðmiðunin er verðbólgustigið og verðbólguhorfurnar inn í framtíðina, þá er staðan ekki glæsilegri en þetta.
Það er þannig samkvæmt spám, ef ég fæ best séð, að flestir reikna ekki með því að verðbólgumarkmiðum Seðlabankans verði náð að fullu og þótt kannski megi reikna með að verðbólgan fari nokkuð niður á síðari hluta næsta árs þá er jafnvel reiknað með því að hún kunni að taka við sér aftur á fyrri hluta ársins 2009, a.m.k. á einu línuriti frá einni af greiningardeildum bankanna er ekki gert ráð fyrir að hún nái töframarkinu 2,5% fyrr en í fyrsta lagi þegar nálgast árslok 2009, um áramótin 2009–2010 gætu menn kannski gert sér vonir um það.
Við erum líka með í höndunum nýjar upplýsingar um skuldaþróunina frá síðasta ársfjórðungi sem ekki lágu fyrir þegar við ræddum þessi mál fyrir nokkrum vikum má segja frekar en dögum við 2. umr. fjárlaga. Þá gerði ég það dálítið að umtalsefni og sætti nokkrum frammíköllum, m.a. frá hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni sem taldi nú ekki endilega rétt með allt farið. Ég notaðist þá við gögn frá öðrum ársfjórðungi eða uppgjöri mála eftir annan ársfjórðung þessa árs en nú liggja fyrir nokkuð haldgóðar upplýsingar að loknum þriðja ársfjórðungi þegar eftir lifir aðeins síðasti fjórðungur ársins. Hvernig ætli þetta hafi svo þróast á þessum þriðja ársfjórðungi, tókst okkur að snúa dæminu við og stefna í rétta átt með skuldaþróun þjóðarbúsins? Nei, því miður var það ekki svo. Hrein staða við útlönd sem mælir mismun erlendra eigna og skulda þjóðarbúsins versnaði um 50 milljarða kr. Hreinar erlendar eignir námu í lok þriðja ársfjórðungs 2007 um 480% af vergri landsframleiðslu, sem auðvitað er þó nokkuð mikið, en það sem verra er á sama tíma námu erlendar skuldir 590% af sömu viðmiðun. Þær eru sem sagt að nálgast 600% af vergri landsframleiðslu og hrein staða þjóðarbúsins versnaði þannig eins og áður sagði um 50 milljarða kr. milli ársfjórðunga. Bæði erlendar eignir en þó ekki síður og miklu meira erlendar skuldir jukust á tímabilinu.
Auðvitað er það svo, eins og allir vita, að viðvarandi viðskiptahalli felur einfaldlega í sér að þjóðin sem heild er að eyða umfram tekjur. Fjármögnun viðskiptahallans á sér þá stað annaðhvort með erlendri lántöku eða mögulega með því að menn selja af eignum til útlendra aðila. Staðan er því ekki að batna, þó að menn geti kannski sagt að hægt hafi á aukningunni sem var í gangi þá er ekki neinar sérstakar gleðifréttir að færa af þessum vettvangi hvað varðar þróun skuldastöðu þjóðarbúsins.
Kannski er rétt að staldra aðeins við eina breytuna enn sem sömuleiðis liggur fyrir eftir þriðja ársfjórðung og það eru skuldir heimilanna. Miðar okkur í rétta átt í þeim efnum á þriðja ársfjórðungi? Nei, skuldir heimilanna hafa ekki aukist jafnmikið á milli ársfjórðunga frá öðrum ársfjórðungi 2006. Heildarútlán lánakerfisins námu í lok þriðja ársfjórðungs rúmum 5.380 milljörðum og þar af námu skuldir heimilanna 1.482 milljörðum kr. og jukust um 5,3% á milli ársfjórðunga. Þetta eru nokkuð ískyggilegar tölur að skuldir heimilanna skuli fara upp um þvílíkar stærðir á aðeins einum ársfjórðungi og hraði skuldaaukningarinnar skuli vera svona geysilegur á þessum tíma. Veruleikinn er sá, hvað sem hver segir, að skuldir heimilanna hafa aukist mun hraðar en ráðstöfunartekjur á undanförnum árum, sú þróun er samfellt í gangi að það dregur í sundur með skuldunum annars vegar og aukningu þeirra og ráðstöfunartekjum heimilanna hins vegar og aukningu þeirra. Það eru dálítið ískyggilegar tölur þegar farið er að skoða það. Ég man vel þann tíma þegar skuldirnar fóru yfir 100% af ráðstöfunartekjum, það var gömul viðmiðun í gamla daga að það væri alltaf ákveðið áhyggjuefni þegar skuldirnar væru orðnar meiri en brúttótekjuöflun ársins, hvort sem það var atvinnurekstur eða heimilisrekstur. Það var einhvern tíma á tíunda áratugnum sem þetta gerðist, en skuldir heimilanna sem hlutfall af ráðstöfunartekjum voru orðnar 213% í lok síðasta árs. Hlutur bankakerfisins hefur aukist þarna verulega, þannig þýddi innkoma viðskiptabankanna á hinn svokallaða íbúðalánamarkað, sem í raun og veru var fyrst og fremst inn á neyslulánamarkaðinn, lán með veði í húsnæði. Þar hefur hlutur bankanna aukist verulega eða úr um fjórðungi af skuldum áður en bankarnir tóku þarna til hendinni og upp í meira en helming nú. Að sama skapi hafa skuldir heimilanna við Íbúðalánasjóð lækkað nokkuð að hlutfalli á þessum tíma.
Þetta vildi ég nefna hér, virðulegi forseti, til viðbótar og uppfyllingar á því sem ég sagði um efnahagsmálin og hinar efnahagslegu kringumstæður við afgreiðslu þessa fjárlagafrumvarps. Mér þykir mjög leiðinlegt sérstaklega að hv. þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir skuli ekki heiðra okkur áfram með nærveru sinni, því að ég veit að hún væri nú þegar komin með efni í andsvar eða svarræðu af því að hún gæti örugglega komið upp og sagt að sá sem hér talar væri alveg einstaklega neikvæður og sæi ekkert nema svartnætti og væri fúll á móti og allt þar fram eftir götunum. En ég er að gera nákvæmlega það sem ég gerði í ræðu við 2. umr. að ég er að lesa upp tölulegar staðreyndir frá Seðlabankanum og frá greiningardeildum bankanna og frá slíkum aðilum sem almennt er nú talið að taka megi svolítið mark á. Þá er það auðvitað orðið þannig að hinar tölulegu staðreyndir eru svo óþægilegar að reynt er að afgreiða þær út úr umræðunni með þessum hætti. Auðvitað er aldrei gaman að lesa upp neikvæða hluti eða flytja neikvæðar fréttir, neikvæðan boðskap inn í umræður, en stundum verður að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru. Og það á ekki að þurfa að eiga orðastað eða rökræðu um málin á þeim nótum að það sé einhver óleyfileg svartsýni eða neikvæðni að ræða um tölulegar staðreyndir efnahagsmála hvað varðar þróun lífskjara, skuldastöðu heimilanna í landinu eða annað í þeim dúr. Það er einmitt mjög illa komið fyrir mönnum ef þeir þora ekki lengur að gangast við umræðum á grundvelli staðreynda um slíka hluti og ekki er von að mönnum gangi vel að takast á við málin og leita lausna ef staðreyndirnar eru orðnar svo óþægilegar að ekki má nefna þær.
Hv. þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem er mér ofarlega í huga, flutti ræðu á undan mér og fór mikinn í því hversu gríðarlega miklar ráðstafanir ríkisstjórnin væri að gera til að bæta hag og þá sérstaklega aldraðra og öryrkja, hygg ég að hún hafi nefnt, en það bar að skilja það svo að í rauninni væru víðtækari umbætur á velferðarkerfinu á blússandi siglingu hjá ríkisstjórninni og hv. þingmaður nefndi aðgerðaáætlun félagsmálaráðherra í málefnum barna og ungmenna.
Við höfum fagnað öllu því sem frá þessari ríkisstjórn hefur komið sem við teljum jákvætt og jafnvel þó að í litlu sé en við leyfum okkur auðvitað að gagnrýna það sem ekki er gert. Við leyfum okkur að benda á ef það sem verið er að gera er langt undir væntingum sem viðkomandi flokkar sjálfir reistu, t.d. fyrir síðustu alþingiskosningar. Við leyfðum okkur að slá þá varnagla þegar við lýstum stuðningi við aðgerðaáætlunina á síðasta vori að hún væri fyrst og fremst falleg fyrirheit um ýmislegt sem menn vildu gera en hana ætti eftir að fjármagna, það ætti eftir að sjá fyrir því að nánast öllu leyti hvernig útgjöldum yrði mætt sem augljóslega mundi stofnast til ef efndir yrðu á hinum fögru fyrirheitum. Menn hafa nefnt þar til sögunnar hluti eins og að nokkru viðbótarfé hefur verið varið á sársveltan málaflokk sem varðar geðheilbrigðismál og ekki síst þjónustu á því sviði við ungt fólk. Það er sömuleiðis þannig að fagna ber því sem er í rétta átt í þeim efnum en ekki get ég sagt að það séu nein stórtíðindi eða einhver ósköp á ferðinni ef fátt annað er hægt að nefna til sögunnar sem enn er í hendi og varðar fjárveitingar inn í þennan málaflokk jafnumfangsmikil og loforðin voru.
Nú er það meira að segja svo að ég þarf ekki að vitna í það sem ég eða við stjórnarandstæðingar sögðum á síðastliðnu vori um þetta mál, það nægir að vitna í þingmann sem greiddi ekki atkvæði með tillögunni einfaldlega vegna þess að hann var sömu skoðunar og við, að þetta væru bara háleit markmið án nokkurrar niðurstöðu hvað varðaði fjármögnun og það væri í raun og veru marklaust að samþykkja slíkt meðan enn væri ekki niðurstaða fengin og samkomulag í höfn um það hvernig menn ætluðu að standa straum af kostnaðinum.
Þótt það sé að sjálfsögðu góðra gjalda vert að samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eða breytingartillögum meiri hlutans nú við 3. umr. í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar á dögunum á að bæta nokkrum fjármunum inn í þennan málaflokk hvað varðar almannatryggingar og greiðslur til aldraðra og öryrkja, þó kannski fyrst og fremst aldraðra þar, sem leiða af hærra frítekjumarki af því að hætta á að taka mið af tekjum maka og skerða greiðslur á þeim grunni, sem eru gömul baráttumál og er vel að eru í sjónmáli að einhverju leyti, þá stendur ósköp einfaldlega það sem ég hef sagt, a.m.k. fyrir mig og ég er ekki í aðstöðu til að draga það til baka þótt ég feginn vildi af því að veruleikinn er sá, að hér er gengið mun skemmra en gefin voru hástemmd loforð um t.d. fyrir kosningar. Hér er enn verið að ganga þó nokkru skemur en stjórnarandstaðan lagði til sameinuð á síðasta hausti, fyrir rúmu ári. Það er veruleikinn. Við lögðum þá til útgjöld eða viðbótarfjármagn sem var af stærðargráðunni 6,5–7 milljarðar kr. umfram það sem fyrri ríkisstjórn hafði þá gert samninga um við aldraða og öryrkja.
Nú er verið að leggja til breytingar sem að fullu komnar til framkvæmda á árinu 2009 kosta innan við 5 milljarða kr. í viðbót eða nálægt því. Þar með sýnist mér nokkuð ljóst, og þegar maður ber þetta saman, að þarna er verið að ganga talsvert skemur. Má þá ekki tala um það? Er ekki leyfilegt að draga athyglina að þeirri staðreynd að hér er enn ekki að nást í höfn sú myndarlega úrbót á þessu sviði sem stjórnarandstaðan á síðasta kjörtímabili sameinaðist um að leggja til í upphafi kosningavetrar haustið 2006. Ég held bara að maður haldi sig við að gera það af því að það er staðreynd og tali út frá því sem fyrir liggur. Ég verð að segja alveg eins og er, virðulegur forseti, að það hefur alveg sáralítil áhrif á mig þó að þingmenn Samfylkingarinnar hafi nú haft hamskipti hér og telji algerlega óleyfilegt að taka nokkrum hlut sem frá ríkisstjórninni kemur nema sem gleðiboðskap og það eigi bara að falla fram og þakka í hverju tilviki og ekki hafa uppi neina gagnrýni jafnvel þó að menn telji efni til slíks.
Ég fór dálítið yfir loforð Samfylkingarinnar á þessu sviði í ræðu hér fyrir nokkrum dögum og get meira og minna vísað aftur til þess. En þá var nú kannski ekki alveg ljóst hvort vænta mætti einhverra breytinga, einhverrar viðleitni til að standa við sumt af því hástemmdasta sem þá hafði verið lofað og enn var ekki útséð um hvort fjárlaganefnd eða meiri hluti hennar mundi leggja eitthvað til. Ég nefndi þar og við þingmenn Vinstri grænna leggjum áherslu á í okkar breytingartillögum hluti innan velferðarmálasviðsins sem liggja algerlega óbættir hjá garði við þessa fjárlagaafgreiðslu. Það er til dæmis húsnæðiskostnaðurinn, vaxtabætur og húsaleigubætur. Það er barnafólkið og hækkun barnabóta og það eru skattleysismörkin. Ég held að hver einasti maður sem kynnir sér málflutning og loforð einkum og sér í lagi Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar, sem fór fram úr öllum flokkum og langt fram úr þeim hvað varðaði hástemmd loforð í þessum efnum, ég held að enginn geti komist að annarri niðurstöðu en þeirri að að öllu öðru leyti en þá þessu sem nú liggur fyrir sé um alveg sorgleg svik á þeim loforðum að ræða. Það að ekki skuli hróflað við vaxtabótunum, það að engin hækkun og reyndur fremur skerðing en hitt á barnabótunum skuli vera að verða hér staðreynd við fjárlagaafgreiðsluna, það að skattleysismörkunum er ekki lyft um eina einustu krónu frá því sem fyrri ríkisstjórn var búin að lofa í samningum við hagsmunasamtök, það hljóta auðvitað að teljast talsverð tíðindi.
Hvernig væri nú að talsmenn Samfylkingarinnar voguðu sér í þingsalinn og ræddu aðeins um þetta, bara ræddu um það eins og það er í staðinn fyrir að reyna að afgreiða umræðuna með þessum hætti að þetta sé bara óskaplega leiðinlegt og menn séu neikvæðir og sjái ekki ljósið? Það hefur nefnilega ekkert staðið á því. Ég tel að viðbrögð okkar hvað varðar það sem frá ríkisstjórn hefur komið í þeim því miður fáu tilvikum sem þar hefur verið um verulega jákvæðar fréttir að ræða þá höfum við fagnað því en sagt á hlutunum kost og löst eins og jafnan er. Við stóðum hér í dag í ræðustól eða talsmenn okkar og hrósuðum sérstaklega úrbótunum sem er verið að gera hér með frumvarpi hvað varðar réttindi foreldra langveikra barna. Það stóð ekkert á því að við hrósuðum því að þar væri vissulega verið að bæta verulega úr, enda mér liggur nú við að segja skárra væri það nú, því það var mikil forsmán hvernig frá því máli var gengið á sínum tíma og fyrri ríkisstjórn til skammar að ganga frá því með þeim hætti sem þar var gert, að mismuna foreldrum eftir því hvenær veikindi eða erfiðleikar voru greindir og ganga frá regluverkinu þannig að það nýttist nánast ekki neitt og náði alls ekki tilgangi sínum. Þetta er verið að lagfæra hér verulega og það er virkilega gleðilegt og um það er full samstaða og hefur ekkert staðið á okkur að hrósa því.
Með sama hætti og við gerum það gagnrýnum við þegar menn sýna ekki einu sinni lit í því að standa við hástemmd loforð sem þeir gáfu kjósendum fyrir kosningar. Hvað sagði Samfylkingin til dæmis um barnabætur fyrir kosningar? Fyrir utan öll hin fögru fyrirheit í sérstökum plöggum þá ályktaði hún alveg sérstaklega um að það ætti að hækka barnabætur með því að draga — ekki bara draga úr — heldur draga verulega úr tekjutengingu þeirra og hækka aldursviðmið ótekjutengdra bóta sem eru sjö ár í dag ef ég man rétt. Er verið að gera þetta, virðulegur forseti? Nei, ekkert af þessu. Það er heldur verið að skerða barnabæturnar og það vill svo til vegna þeirrar viðmiðunar sem þar er notuð við að færa þær upp, sem vissulega er sú sem verið hefur við lýði. En á tímum vaxandi verðbólgu á síðari hluta ársins er augljóst mál að þetta kemur mjög illa út og það verður þó nokkur raunskerðing á barnabótunum á næsta ári miðað við verðbólgu eins og hún hefur verið að undanförnu. Haldist hin háa verðbólga áfram verður sú skerðing umtalsverð.
Það átti auðvitað að gera svo margt fleira sem ég ætla ekki að þreyta menn á að telja upp hér en það má til dæmis nefna að þarna var lofað lengingu fæðingarorlofs í eitt ár. Það er gott og göfugt markmið en ég sé nú ekki að bóli á efndum þess í fjárlagafrumvarpinu. Það átti að gera margt fleira sem ég veit ekki hvernig Samfylkingin ætlaði kannski að gera í gegnum Alþingi eins og að lofa ókeypis skólamáltíðum og svo framvegis. Það átti að koma á 100 þús. kr. frítekjumarki fyrir lífeyrisþega, bæði vegna atvinnutekna og tekna úr lífeyrissjóði. Það er ekki verið að því. Það átti að hækka aldurstengda örorkuuppbót um helming til að bæta kjör þeirra sem verða öryrkjar snemma á lífsleiðinni. Er verið að því? Nei.
Þó að það sé verið að setja þessa viðbótarfjármuni inn í þennan málaflokk, sem stendur að sjálfsögðu ekkert á okkur að viðurkenna, þá vantar heilmikið upp á að þar sé farið eitthvað nálægt hinum hástemmdu kosningaloforðum Samfylkingarinnar. Þá mundu þau kannski hafa tilhneigingu til þess að koma hér upp og segja: „Ja, við erum nú ekki búin að vera í ríkisstjórn nema í hálft ár.“ Það hefur heyrst sem svar hérna af og til. Gott og vel. Og það er kannski enginn að ætlast til þess eða gera neinar kröfur um að þessi kosningaloforð nái öll fram að ganga strax á fyrsta ári. En að það sé ekki sýndur neinn minnsti litur gagnvart kannski mikilvægustu málaflokkunum sem þarna var lofað og snúa að barnafólki, snúa að lágtekjufólki í formi skattleysismarka og snúa að húsnæðiskostnaðinum í formi vaxtabóta og húsaleigubóta, sem auðvitað þyrfti að stórhækka sömuleiðis, hlýtur nú að teljast dálítið dapurt.
Ótal margt fleira var þarna talað um og það var ályktað af hálfu Samfylkingarinnar um að skattleysismörkin skyldu leiðrétt til að bæta kjör láglaunafólks og ég geri ekki ráð fyrir því að sú leiðrétting hafi átt að vera niður á við. Ég geri ekki ráð fyrir því að það hafi verið orðað þannig í kosningabæklingnum enda allt hitt gefið í skyn. Það átti að lækka skatta á lífeyrisgreiðslur úr 35,72% niður í 10% og munar nú um minna. Það munar nú um minna en að allir lífeyrisþegar, allir þeir sem fá greiðslur úr lífeyrissjóðum í landinu og greiðslur sem eðli málsins samkvæmt lenda yfirleitt ofan við skattleysismörk, fái þessa kjarabót í vasann, 25 prósentustig sem til skattlagningar koma. Það átti að lækka virðisaukaskatt á lyfjum úr 24,5% í 7% og svo framvegis.
Virðulegur forseti. Já, ég leyfi mér að endurtaka þetta og vitna aftur í þetta einfaldlega vegna þess að hafi talsmenn og bloggdálkahöfundar Samfylkingarinnar haldið að það mundi breyta eitthvað okkar málflutningi þó að þau tækju á móti honum með þeim hætti sem þau hafa reynt undanfarna daga þá er það misskilningur. Það verður að þessu leyti ekki þaggað niður í okkur að minnsta kosti innan þeirra marka sem við höfum hér enn ræðurétt á Alþingi. Við munum halda mönnum við efnið. Við munum rifja upp hverju menn lofuðu og hvað menn sögðu og vekja athygli á því ef menn eru ekki sjálfum sér samkvæmir og sýna jafnvel ekki lit á því.
Ég ætlaði lítillega að víkja að heilbrigðismálum, virðulegur forseti, vegna þess að ég er þeirrar skoðunar og mér sýnist það í raun blasa við að það er einn sá málaflokkur sem sennilega fær almennt lakasta afgreiðslu við fjárlagaafgreiðsluna nú. Við vitum að heilbrigðismálin eru gríðarlega stór og umfangsmikil og þetta er dýrasti málaflokkur hins opinbera rekstrar, heilbrigðisráðuneytið, svo maður tali nú ekki um sameinað heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti sem enn er langstærst í hinni opinberu veltu. En það blasir við að heilbrigðismálin eru einhvern veginn algerlega afvelta. Það virðist engin sérstök viðleitni vera þar í gangi af neinu tagi til þess að ná utan um hlutina og það læðist að mörgum sá ónotalegi grunur að menn séu kannski ekkert óskaplega ósáttir með þetta vegna þess að það undirbúi bara jarðveginn fyrir hluti sem í vændum séu, sem sé meiri háttar uppstokkun í þessu kerfi og færsla verkefna út til einkaaðila og ýmsar slíkar kerfisbreytingar sem fyrst og fremst, að mínu mati, eiga að þjóna pólitískum tilgangi og ná fram pólitískum markmiðum fremur en þau séu vandlega undirbyggð faglega eða sérstök rök standi til þess að fara í þær breytingar af þeim ástæðum.
Það hefur verið mikið rætt um til dæmis þá útreið sem heilsugæslan er að fá, heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu og reyndar heilsugæslan og heilbrigðisstofnanir vítt um land. Ég minni enn á stöðuna á sjálfu flaggskipinu, Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi þar sem hin sérhæfða þjónusta er veitt og í veigamiklum mæli er á ferðinni starfsemi sem hvergi annars staðar er að fá í landinu, sem þessi stofnun okkar ein eðli málsins samkvæmt, miðstöð hinnar sérhæfðu heilbrigðisþjónustu, veitir.
Hvað var nú í fréttum í morgun af þeim vettvangi í einu dagblaðinu? Þar er ástandið þannig að það er slíkur grenjandi húsnæðisskortur á gjörgæsludeild Landspítalans og það eru slíkir biðlistar að mann snarsvimar þegar maður sér þessar tölur. Það bíða 200 manns eftir hjartaþræðingu og 50 manns eru á biðlista eftir að komast í hjartaskurðaðgerð. Tíu þeirra sjúklinga bíða á hjartadeild þar sem þeir eru of veikir til að vera heima hjá sér. En þeir bíða. Þetta er svo veikt fólk að það verður að vera inni á spítala á meðan það bíður eftir aðgerð. Og hvaða áhætta ætli sé þá fólgin í því? Þetta leysa menn ekki með því að flytja verkefni út á sjúkrahús í nágrenninu. Þessi sérhæfða starfsemi er aðeins þarna og til hennar þarf meira fé. Að henni þarf að búa betur hvað fjármuni og mannafla snertir. Þetta er, eins og haft er eftir einum yfirlækninum, óþolandi. Þessi staða er með ólíkindum. Það er alveg rétt. Hún er það algerlega. Maður þekkir til aðstæðna sem fólk er stundum í af þessu tagi, bíður upp á von og óvon vegna þess að viðkomandi er náttúrlega í gríðarlegum áhættuhópi og það bara lifa hreinlega ekki allir biðina af. Það er dapurlegt að þurfa að segja það en það er veruleikinn. Það er bara hreinlega veruleikinn.
Hér er ekki við það að eiga til dæmis að menn séu að bíða eftir því að líffæragjafi finnist eða annað í þeim dúr. Nei, hér er fyrst og fremst um það að ræða að það er ekki búið þannig að þessari lífsnauðsynlegu starfsemi að hún anni þörfinni. Það vantar svona mikið upp á. Þá þýðir ekkert að tala um það eins og þessir hlutir séu í lagi. Þeir eru ekki lagi.
Það er tilfinnanlegt að langir biðlistar séu eftir bæklunaraðgerðum eða öðru slíku. Það er kannski ekki beinlínis lífshættulegt, oftast ekki, þótt viðkomandi líði kvalir og sé ófær frá vinnu og annað í þeim dúr. En hér eiga í hlut sjúklingar í áhættuhópi. Ég held að hæstv. ríkisstjórn verði að horfast í augu við að mikil ábyrgð er samfara því að reyna ekki að takast betur og myndarlegar á við þessa hluti.
Þótt það sé góðra gjalda vert að vilja horfa til möguleikanna í kerfinu — ég tala ekki gegn því að efla heilbrigðisstofnanir hér í nágrenni Landspítalans — þá er ég ekki alveg sáttur við þá áherslu sem er lögð upp þar, að þær verði yfirfall fyrir verkefni frá Landspítalanum sem hann annar ekki eða verkefnum sem yrði létt af honum. Mér finnst það dálítið sérkennileg áhersla þegar í hlut eiga sjúkrahús eða heilbrigðisstofnanir eins og á Suðurnesjum, á Selfossi og á Akranesi, á svæðum þar sem fólki fjölgar og þörfin fyrir þjónustu, vegna upptökusvæðisins, vex.
Ég hefði haldið að það ætti að vera fyrsta verkefni að búa betur að þeim stofnunum og efla vegna þeirrar þjónustu sem þær veita í dag upptökusvæði sínu. Ef þær geta svo bætt á sig verkefnum, hjálpað til við að eyða biðlistum eða taka að sér aðgerðir og verkefni sem létta á annars staðar þá er það góðra gjalda vert. En mér finnst að það eigi að vera númer tvö og kjarnastarfsemin á viðkomandi stöðum verðskuldi meiri athygli og stuðning en hún hefur fengið. Það hefur ríkt dálítil hálfvelgja gagnvart því hversu mikla þjónustu ætti að veita almennt á þessum stöðum. Það er ákaflega dapurlegt að ekki hafi t.d. verið meiri metnaður en svo að ekki séu sólarhringsvaktir í sumum tilvikum og þar geti ekki farið fram fæðingar nema á virkum dögum milli átta og fjögur og þar fram eftir götunum.
Við endurflytjum og komum aftur með ýmsar breytingartillögur, þingmenn Vinstri grænna, sem við kölluðum sumar aftur við 2. umr., eins og oft er gert. En þá er ekki útséð um hvaða afgreiðslu ýmis mál fá. En sumar þeirra endurflytjum við. Við endurflytjum tillögur sem voru felldar en í breyttu formi eða með lægri upphæðum eða eftir atvikum viljum láta á það reyna til þrautar hvort stuðningur sé við það. Við viljum a.m.k. leggja áherslur okkar með slíku.
Við flytjum tekjuöflunar- og sparnaðartillögur og hins vegar útgjaldatillögur. Þær eru nánast í jafnvægi þannig að yrðu allar okkar breytingar samþykktar mundi afgangurinn af ríkissjóði verða af svipaðri stærðargráðu og hann er áætlaður samkvæmt tillögum meiri hlutans. Þar eru tillögur um meiri skatttekjur af fjármagnstekjum, um sparnað á liðnum Varnarmál og hvað varðar rekstur hins hernaðarlega hluta ratsjárkerfisins. Síðan eru fjölmargar breytingartillögur sem lúta að betri fyrirgreiðslu eða meiri fjármunum til þörfustu málefna sem við veljum þar úr. Sumar þeirra hafa þegar verið nefndar.
Ég staldra t.d. við þær áherslur sem við leggjum á að bæta afkomu sveitarfélaganna. Undir liðinn Jöfnunarsjóður sveitarfélaga færum við þrenns konar viðbótarfjárveitingar. Aukin eru framlög til tekju- og aðstöðujöfnunar hjá sveitarfélögum með lakast settu sveitarfélögin sérstaklega í huga, upp á 700 millj. kr. Ríkið geti gengið til samstarfs við sveitarfélögin um upptöku fyrsta áfanga í gjaldfrjálsum leikskóla. Ríkið komi einnig til móts við sveitarfélögin og geri þeim kleift að hækka húsaleigubætur myndarlega. Í það áætlum við 1 milljarð, sem er í takt við það sem við leggjum til varðandi hækkun vaxtabóta.
Reyndar vil ég þá minna á það í leiðinni að stefna okkar og áhersla hefur verið á að ríki og sveitarfélög ættu í samskiptum sínum að endurskoða þetta fyrirkomulag og ríkið taka húsaleigubætur til sín, létta þeim útgjöldum af sveitarfélögunum. Það gæti t.d. verið liður í að mæta kostnaði af upptöku gjaldfrjáls leikskóla og mundi sennilega draga um tvo þriðju af þeim kostnaði sem sveitarfélögin mundu bera af því að gera leikskólann gjaldfrjálsan.
Kosturinn er sá að þá gæti ríkið tekið húsaleigubætur og vaxtabætur og samræmt og sameinað á einum stað í skattkerfinu sem húsnæðisbætur. Þannig væri hægt að tryggja betra jafnræði milli þeirra sem velja sér ólíkar leiðir í þessum efnum hvað húsnæðisöflun snertir, þá sem kjósa að leigja eða eru þannig settir á einhverju tímaskeiði eða alla ævi að það henti þeim betur en að koma sér upp eigin húsnæði.
Að sjálfsögðu höfum við bæði tillögur um barnabætur og vaxtabætur, eins og við 2. umr. Það væru hæg heimatökin hjá Samfylkingunni ef hún vildi sýna lit í því að standa við kosningaloforðin og samþykkja tillögur okkar um hækkun barnabóta upp á 800 millj. kr. Það eru engin ósköp á lið sem mundi enda í 9,6 milljörðum og vaxtabæturnar um 800 millj. kr., mundu hækka þann lið upp í 6,7 milljarða tæpa.
Ég vil líka nefna breytingartillögur sem við endurflytjum varðandi Þróunarsamvinnustofnun Íslands og þróunarmál og alþjóðlega hjálparstarfsemi. Við flytjum tillögu um nokkuð minni hækkun á þeim lið en felld var við 2. umr. um 200 millj. kr. til Þróunarsamvinnustofnunar og 100 millj. í liðinn Þróunarmál og alþjóðleg hjálparstarfsemi. Ekki virðist manni af fréttum utan úr heimi annað en að full þörf sé fyrir þá peninga. Nægir að minna á hörmungarnar í Miðausturlöndum sem halda áfram, neyðarástandið á Gaza þar sem milljónum er haldið í fangabúðum og herkví og þeir heimsóttir reglulega með skriðdrekum og jarðýtum eins og fréttir gærdagsins og fyrradags báru með sér.
Ég vil líka nefna breytingartillögu um að koma til móts við lífeyrissjóðina, tillögu sem er flutt af mér og hv. þm. Jóni Bjarnasyni og Dýrleifu Skjóldal. Það væri hægt að koma í veg fyrir það, sem gerðist 1. desember síðastliðinn og heldur áfram að óbreyttu eftir að ríkisstjórnin gafst upp í málinu, að sá hópur öryrkja sem þar varð fyrir áfalli finni fyrir verulegri skerðingu á greiðslum, Fresta mætti því þangað til sú heildarendurskoðun á þeim málum sem boðuð hefur verið er gengin í gegn. Talið er að það kosti 300–400 millj. kr. að bæta lífeyrissjóðunum upp það sem þeir þurfa að taka á sig í útgjöldum ef þeir halda þessum greiðslum áfram, umfram það sem þeir hafa talið að þeim beri skylda til.
Það er auðvelt að færa fyrir því rök að í raun stendur þetta ríkinu ákaflega nærri. Það er augljóst að ríkissjóður hefur komist upp með að velta byrðunum af félagslegri örorku m.a. yfir á lífeyrissjóðina umfram það sem eðlilegt getur talist í okkar kerfi.
Við erum síðan með stóra tillögu um að setja viðbótarfjármuni í lífeyristryggingar. Þær tillögur eru í takti við sameiginlega stefnumótun stjórnarandstöðunnar á fyrra kjörtímabili. Þannig reynum við með ýmsum hætti að sýna þær áherslur í sambandi við þessa fjárlagaafgreiðslu sem við hefðum viljað sjá. Það mætti þar nefna fjölmargt fleira sem aðrir þingmenn munu væntanlega koma inn á.
Ég ætla að síðustu að nefna fáein orð um sveitarfélögin almennt og stöðu þeirra. Það hafa reyndar fyrri ræðumenn komið inn á, þar á meðal hv. þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem talaði hér á undan mér. Það vill svo vel til að óvenju mikið er af þaulreyndu sveitarstjórnarfólki sem hefur skipt um starfsvettvang eða bætt á sig auknum skyldum og er komið á Alþingi. Auðvitað vakna vonir um að þess muni sjá dálítið myndarlega stað að vaskir menn væru mættir þar til leiks, t.d. hv. formaður og varaformaður fjárlaganefndar, báðir hv. þingmenn kempur af sveitarstjórnarstiginu. Ekki efast ég um að hugur þeirra hafi staðið til þess að gera betur en niðurstaðan er ekki merkileg. Það er þetta góða gamla svar að í besta falli sé málið í nefnd.
Það er t.d. merkilegt hversu seinunnið það virðist ætla að reynast ríkisstjórninni að ganga til samstarfs við sveitarfélögin um að létta skuldum af þeim lakast settu, sem búið er að vera í farvatninu missirum saman. Síðast var því borið við að sveitarfélögin þyrftu að setja sérstakar fjárhagsreglur, klæða sig í fjárhagslega spennitreyju til að halda aftur af útgjöldum og setja þak á skuldir áður en ríkið getur hjálpað þeim að ná þeim niður. Það er dálítið sérkennilegt ef gildandi ákvæði og reglur um fjármál sveitarfélaga, fjárhagsáætlanir, ársreikninga og uppgjör duga ekki til þess. Bíddu, hvað þarf? Á að fara að taka að nokkru leyti sjálfsforræði af sveitarfélögunum að þessu leyti og nota þá gulrót að ríkið komi eitthvað til móts við þau lakast settu og hjálpi þeim að ná niður skuldum?
Misgengið í afkomu stjórnsýslustiganna í landinu getur ekki verið svona áfram. Það með öllu óþolandi að á þeim tímum að ríkissjóður hefur haft miklar tekjur af þenslu og veltu og selt verðmætar eignir og borgað niður skuldir, þannig að hann er því sem næst skuldlaus sem er vissulega gott, skuli sveitarfélögin jafnt og þétt hafa safnað skuldum og eiga í bullandi erfiðleikum við að ná endum saman.
Þegar svo er komið að sjálft flaggskip sveitarfélaganna á landsbyggðinni, Akureyri, á orðið í býsna miklum erfiðleikum með að koma hlutunum saman er ekki von á góðu. Mér finnst ekki nóg að hægt sé að krækja þessu einhvern veginn saman með smáæfingum og bókfæra söluhagnað af Landsvirkjun og slíkt. Mér finnst að þetta langöflugasta sveitarfélag landsbyggðarinnar þyrfti að standa í blóma ef allt væri með felldu og skila afgangi, vera myndarlega í stakk búið til að sinna sínu gríðarlega mikilvæga hlutverki og búa vel að öllu því sem þar er. Það er ákaflega mikilvægt í byggðalegu tilliti og fyrir íbúa svæðisins. En það er ekki von að vel gangi ef jafnvel svo öflug eining sem Akureyrarkaupstaður er nær ekki að skila afgangi. Ég get ekki gefið ríkisstjórninni, enn sem komið er, sérstaklega háa einkunn hvað það varðar að hún hafi staðið sig vel eða tekið myndarlega til hendinni.
Ég hlustaði á formann Sjálfstæðisflokksins, hæstv. forsætisráðherra á myndbandi, af upptöku af ræðu sem hann hélt í Valhöll í haust í tilefni af því að þing var að koma saman. Ætli það hafi ekki verið daginn áður. Ég tók eftir því að fyrir utan þau athyglisverðu ummæli hæstv. forsætisráðherra um það sem í vændum væri á sviði heilbrigðismála, sem hefur nú orðið nokkuð frægt og reyndar líka orkumála, tók hæstv. forsætisráðherra þannig til orða að þessi ríkisstjórn ætlaði að taka til hendinni.
Mér þótti þetta vel orðað. En betur að satt væri. Sérstaklega í þeim tilvikum sem væntingar voru um að eitthvað mundi gerast eins og í sambandi við þetta eilífðarvandræðamál, fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga, sem er alveg með endemum hversu torsótt hefur reynst að taka myndarlega á og rétta af þennan halla og misgengi milli stjórnsýslustiga. Það er svo vitlaust og ósanngjarnt sem nokkuð getur verið í okkar samfélagi.
Hvers vegna á að gengisfella endalaust þau verkefni sem sveitarfélögin hafa með höndum? Þau fara með um fjórðung hinnar opinberu veltu, opinberu samneyslu í landinu og liðlega það líklega. Við höfum treyst þeim fyrir og falið gríðarlega mikilvæg undirstöðuverkefni á sviði velferðarmála í landinu, t.d. leikskóla og grunnskóla, félagsþjónustuna o.s.frv. Hvers vegna í ósköpunum á stjórnsýslustigið sem fer með þessa hluti að búa við endalausar þrengingar? Tugir sveitarfélaga eru augljóslega ekki í færum til að sinna sínum lögbundnu skyldum og veita þá þjónustu sem þeim ber að veita, sem íbúarnir eiga rétt á, með sómasamlegum hætti. Þau geta það ekki. Með þessu finnst mér ekki aðeins sveitarstjórnarstigið gengisfellt heldur og viðfangsefnin sem þar eiga í hlut.
Sveitarfélögin og starfsemi þeirra er gríðarlega mikilvæg undirstaða velferðarkerfisins í landinu. Þau fara með mjög veigamikla þætti í því. Þar fyrir utan er fjárhagsleg spennitreyja þeirra og þrengingar að mínu mati einn stærsti undirliggjandi orsakavaldur byggðavandans. Ef sveitarfélögin eru í erfiðleikum þá lamar það möguleika þeirra til að takast á við þann þátt mála að búa til aðlaðandi umhverfi fyrir fjölskyldur og atvinnulíf og leggja lið góðum framfaramálum á svæðinu o.s.frv. Þau hafa enga peninga til þess. Þau hafa ekki einu sinni peninga til að endurnýja og fjárfesta í lögbundinni og skyldubundinni þjónustu, byggja yfir hana, endurnýja og halda við húsakosti o.s.frv. Þau hrekjast hvert á fætur öðru út í dýrar og pólitískt óhentugar einkalausnir, t.d. að eiga ekkert húsnæði sjálf og vera ofurseld einkaaðilum um húsnæði starfsemi sína. Þau þurfa að sækja það undir aðra aðila og geta ekki framkallað áherslubreytingar í þjónustunni vegna þess að þau eru bundin af langtímasamningum við einkaaðila sem geta farið í mál ef þeir fá ekki borgað árlega næstu 25 árin, eða hvað það nú er.
Að mínu mati dregur slíkt ástand smátt og smátt þróttinn úr þróun og metnaði til að reyna að fylgjast með tímanum, innleiða nýjungar o.s.frv. Það er stórhættulegt hvernig slíkt getur læðst aftan að mönnum og hefur reynst mönnum miður vel sums staðar þar sem menn fóru út á þessa braut erlendis, kannski tíu árum áður en veikin barst til Íslands. Ég hygg að menn gerðu rétt í því að fara bara til Danmerkur, þótt ekki væri lengra, og heimsækja sveitarfélagið Farum og kynna sér hvernig Brixtofte og hans menn fóru með það ágæta samfélag.
Þetta viðfangsefni, virðulegi forseti, fær ekki fullnægjandi úrlausn og á þar af leiðandi örugglega eftir að verða á borðum okkar þingmanna og til umfjöllunar á komandi mánuðum og missirum, því miður. Það er ákaflega dapurlegt að þetta skuli ganga svona ár eftir ár. Það er reglubundið vandræðaástand í þessum efnum og aldrei tekið almennilega til í því.
Ég held að þar ráði sambland af einhverri þrákelkni, einhverjum hugsunarhætti ríkisvaldsins eða framkvæmdarvaldsins, að það sé hægt að hafa sveitarfélögin betur undir stjórn og láta þau hlýða með því að þau þurfi sífellt að sækja á. Þeim er haldið í bóndabeygju, spennitreyju. Menn þurfa að sækja um úrlausn og verða að þakka fyrir það litla sem þeir fá hverju sinni þannig að menn eru í endalausum leiðöngrum eins og fátækir bændur voru á öldum áður, þegar þeir þurftu að fara fyrir kaupmanninn á hverju ári og reyna að gráta út úr honum úttekt. Þetta er eitthvað svipað. Það er náttúrlega algjörlega óþolandi að ekki sé búið vel að sjálfstæðu stjórnsýslustigi í landinu sem okkur ber skylda til, samkvæmt lögum og samkvæmt alþjóðlegum samningum sem við höfum fullgilt eins og um sjálfstæði sveitarfélaga, Evrópusáttmála um sjálfstæði sveitarfélaga svo dæmi sé tekið, að búa sómasamlega að. Það er ekki gert og það verður að takast fyrr en síðar að ráða bót á því.
Ég ætla að ljúka máli mínu, virðulegi forseti. Ég vildi koma inn á þetta í lok þessarar umræðu af minni hálfu. Ég geri ekki ráð fyrir því að ég eigi eftir að tjá mig mikið meira um fjárlög ríkisstjórnarinnar. Þetta lítur allt voðalega vel út á pappírunum, svipað og með góðærið. Þetta er voðalega fallegt svona ef maður horfir á það úr mátulegri fjarlægð og rýnir ekkert á bak við tjöldin. En svo kemur nú í ljós þegar blessað góðærið er skoðað að það er nú aðallega tekið að láni og því er ákaflega sorglega misskipt og þeim sem mælast undir fátæktarmörkum, hvort sem eru fjölskyldur eða börn, fer síst fækkandi.
Það er eiginlega eins með þetta fjárlagafrumvarp. Ég óttast að það sé aðallega fallegt úr fjarlægð og ég er einn manna um að hafa áhyggjur af því að menn ofmeti frekar tekjur ríkissjóðs á næsta ári heldur en að vanmeta þær. Menn eru svo vanir því að vanmeta tekjurnar af því að sveiflan hefur öll verið í þá átt undanfarin ár. Það hafi á köflum verið uppi í umræðunni áhyggjur af því að tekjurnar verði of háar. Ég deili þeim ekki. Það mundi ekki gera okkur til þótt tekjur ríkissjóðs yrðu eitthvað meiri en áætlað er. En ég ætla að vona að við verðum ekki svo óheppin að þær reynist miklu minni. Það mun auðvitað fyrst og fremst ráðast af hagsveiflunni, hvort hér getur orðið sæmilega mjúk aðlögun í hagkerfinu eða hvort hún verður harkaleg, hvort á okkur skellur meiri samdráttur og hagkerfið kólnar hraðar niður en ella væri.