135. löggjafarþing — 43. fundur,  13. des. 2007.

afgreiðsla allsherjarnefndar á þingskapafrumvarpinu.

[10:56]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Nú eru liðnar þær 20 mínútur sem gert er ráð fyrir að rætt sé um störf þingsins. Hér hefur komið fram ósk frá tveimur þingmönnum um að það mál sem er fimmta mál á dagskrá í dag komi ekki til umræðu fyrr en síðar. Á þessari stundu vill forseti ekki gefa neinar yfirlýsingar um það, en gerir ráð fyrir því að kalla saman fund formanna þingflokkanna að loknum atkvæðagreiðslum til þess að fara yfir framvinduna í dag og minnir hv. þingmenn á að samkvæmt starfsáætlun er þetta síðasti dagur þingsins fyrir jól. Í því ljósi þurfum við að leggja á ráðin um hvernig við ljúkum störfum hér með eðlilegum hætti og á það vil ég leggja áherslu og mun fara yfir það með formönnum þingflokka á eftir.