135. löggjafarþing — 43. fundur,  13. des. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[12:37]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Hér er lagt til að liðurinn Vaxtabætur verði hækkaður um 800 millj. kr. og er í raun og veru allt of lítið ef út í málið er farið. Það er kunnara en frá þurfi að segja að húsnæðiskostnaður hefur hækkað gríðarlega á undanförnum missirum og nú, síðustu mánuðina, stafar sú hækkun einkum af hækkuðum vaxtakostnaði. Eftir að fasteignaverð hætti að hækka eða að hægja tók á hækkun fasteignaverðs er það einkum stóraukinn vaxtakostnaður sem er íþyngjandi fyrir fólk eins og sést vel þegar verðbólgumælingar eru skoðaðar.

Þess vegna er það algerlega með endemum að ríkisstjórnin skuli ekki ætla með nokkrum hætti að koma til móts við stóraukinn kostnað þess fólks sem nú stendur undir afborgunum af íbúðarhúsnæði. Ef eitthvað er þyrfti auðvitað að hækka vaxtabæturnar mun meira en þetta og koma til liðs við sveitarfélögin og gera þeim kleift að hækka húsaleigubætur að sama skapi.