135. löggjafarþing — 43. fundur,  13. des. 2007.

kjararáð.

237. mál
[14:34]
Hlusta

Frsm. meiri hluta efh.- og skattn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður fullyrti að hann væri einn um þá skoðun að Alþingi ætti að ákveða laun þingmanna. Það er ekki rétt. Ég hef mörgum sinnum bent á að Alþingi eigi að ákveða laun þingmanna en þá fyrir næsta kjörtímabil — og geri það tímanlega áður en kemur að prófkjörum og ákvörðunum fyrir næsta kjörtímabil — þannig að ef ákveðið er að hafa launin há vex samkeppnin um þingmannsstöðuna og minni líkur eru á að þingmenn nái kjöri næst og ef ákveðið er að hafa launin lág er gulltryggt að þeir fái að halda sætinu. Ég held að það yrði ágætislausn í þessu sambandi.

Ég vil líka benda á að ég er, held ég, eini þingmaðurinn sem hefur flutt frumvarp um að þingmenn njóti sömu lífeyrisréttinda og aðrir landsmenn. Ég man ekki til þess að nokkur hafi flutt þannig frumvarp nema ég. Ég hef því sinnt þessum málum töluvert varðandi laun þingmanna. Ég er sammála hv. þingmanni um að með því að fela dómsvaldinu ákvörðun um laun þingmanna eru menn að víkja sér undan ábyrgð.