135. löggjafarþing — 43. fundur,  13. des. 2007.

stjórn fiskveiða.

91. mál
[15:17]
Hlusta

Frsm. 2. minni hluta sjútv.- og landbn. (Grétar Mar Jónsson) (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Já, sumum sárnar að maður skuli voga sér að gagnrýna vinnubrögð þeirra. En það vill nú svo til að Vinstri grænir er flokkur sem er búinn að vera til í átta ár að minnsta kosti, er á níunda ári ef ég man rétt. Ég man ekki til þess að þeir hafi lagst gegn núverandi fiskveiðistjórnarkerfi.

Reyndar get ég viðurkennt það að ég hef heyrt tvo menn tala um að kerfið sé lélegt og gjaldþrota. Með minnihlutaáliti sínu gengur hv. þm. Atli Gíslason lengra en ríkisstjórnarflokkarnir í því að taka veiðileyfagjald og laga stöðu sægreifanna. Laga stöðu sægreifanna en ekki fólksins, ekki fólksins sem er að missa atvinnuna, sjómanna og fiskvinnslufólks. Það er þess vegna sem ég er að minnast á þetta að maður hefur ekki heyrt eða séð tillögur frá vinstri grænum um þetta.

Lái mér hver sem vill en svona er bara staðan. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem vinstri grænir, eða þeir sem standa að Vinstri grænum eru að fjalla um sjávarútvegsmál. Ég man þá tíð að formaður vinstri grænna í dag, Steingrímur J. Sigfússon, var formaður í sjávarútvegsnefnd, reyndar í stjórnarandstöðu. En við höfum ekki fundið þennan skilning eða vilja til þess að breyta einhverju, hv. þm. Atli Gíslason.