þingsköp Alþingis.
Herra forseti. Því er til að svara að ég vissi ekki hvernig staða þeirra mála var. Hins vegar var mér ljóst, eftir að hafa fylgst með umræðum og samræðum forseta og þingflokksformanna í þingsal og haft spurnir af þeim utan þingsalar, að sá dráttur sem orðið hefur á því að þetta mál væri tekið á dagskrá hér í dag væri í samræmi við óskir frá því strax í morgun af hálfu vinstri grænna. Ég taldi að sá tími sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð teldi sig þurfa til að koma málum á framfæri hefði verið nýttur.
Ég vissi ekki hvernig staða mála var nákvæmlega en hlýddi kalli forseta þegar málið var tekið á dagskrá og gert var ráð fyrir því að ég hæfi mál mitt.
Ég minni á að gert var ráð fyrir því að þetta mál kæmi hér á dagskrá sem fyrsta mál á eftir atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í morgun. Það var ekki gert. Ég sé ekki betur en að nokkurn veginn hafi verið komið til móts við þau sjónarmið sem vinstri grænir settu fram við upphaf þingfundar í morgun til að þeim gæfist tími fram eftir degi til þess að ljúka starfi sínu.