þingsköp Alþingis.
Markmiðið með beiðni okkar, hæstv. forseti, var ekki það að umræðan skyldi hefjast klukkan sex en ekki á öðrum tíma heldur að fyrir lægju nauðsynleg gögn áður en umræðan hæfist. Hv. þm. Birgi Ármannssyni var fullkunnugt um þessa tímasetningu því að hann, sem formaður allsherjarnefndar, bar þessa ósk Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs formlega til hæstv. forseta í gærkvöldi. Honum var kunnugt um málavöxtu og hvers vegna þessi ósk var sett fram.
Nú er það svo að yfirlýst markmið með breytingum á þingskapalögum af hálfu aðstandenda þessa frumvarps er að tryggja vönduð vinnubrögð á Alþingi. Mig langar að beina þeirri spurningu til formanns allsherjarnefndar þingsins hvort honum finnist þessi vinnubrögð í anda vandaðra vinnubragða.