135. löggjafarþing — 45. fundur,  14. des. 2007.

tilfærsla verkefna innan Stjórnarráðs Íslands.

130. mál
[13:07]
Hlusta

Frsm. minni hluta allshn. (Atli Gíslason) (Vg) (andsvar):

Hv. þm. Lúðvík Bergvinsson bendir á að ég hafi flutt þriðja sinn sömu ræðu um sama hlutverk. Mér sýnist ekki af veita að flytja slíka ræðu á hverjum degi. Þessar vísur eru aldrei of oft kveðnar, það er bara þannig. Þungir dómar þingmannsins sem hér stendur, hv. þm. Lúðvík Bergvinsson, byggja á umsögnum umsagnaraðila um frumvarpið og byggja á handbók um vinnutilhögun.

Ég verð að segja, varðandi spurningu hv. þingmanns sem lýtur að því hvort það eigi ekki að horfa á þetta með umburðarlyndi: Hefur ekki Alþingi eftirlitshlutverk með framkvæmdarvaldinu, með kostnaði sem framkvæmdarvaldið leggur út í og annað slíkt? Vill hv. þingmaður leggja af lög um Stjórnarráðið og færa valdið algjörlega yfir til Stjórnarráðsins, fjárveitingarnar og allt sem því lýtur? Auðvitað ekki, til þess er þrískiptingin. Mitt hlutverk sem þingmanns er m.a. að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Ég stíg aldrei úr því hlutverki sjái ég meinbugi á frumvarpi, einnig um Stjórnarráðið, sem eru jafnalvarlegir og raun ber vitni í þessu tilviki.