135. löggjafarþing — 45. fundur,  14. des. 2007.

skráning og mat fasteigna.

289. mál
[16:30]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir þessar upplýsingar. Ég tel að það sé mikilvægt að þetta komi fram vegna þess að það er væntanlega ástæðan fyrir þeim fyrirvörum sem hafa verið hjá a.m.k. tveimur hv. þingmönnum við nefndarálitið en gerir það að verkum að mér finnst eðlilegt að samþykkja frumvarpið með þeim breytingum sem hér eru lagðar til.