135. löggjafarþing — 47. fundur,  15. jan. 2008.

framhaldsfundir Alþingis.

[13:32]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 15. janúar 2008 kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 4. janúar 2008.

 

Ólafur Ragnar Grímsson.

———————

Geir H. Haarde.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljósi þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.