135. löggjafarþing — 47. fundur,  15. jan. 2008.

uppgjör fjármálafyrirtækja í evrum.

[14:03]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Eins og hv. þingmenn vita þá gilda um þessi mál sérstök lög. Í þeim lögum er gert ráð fyrir því að íslensk fyrirtæki geti gert reikninga sína upp í erlendum gjaldmiðlum hafi fyrirtækin uppfyllt ákveðin skilyrði. Áður en þetta er gert þurfa þau að leita heimildar hjá ársreikningaskrá og fá þar leyfi. Ákvæði ársreikningaskrár eru síðan kæranlegar til ráðherra ef viðkomandi aðilar eru ósáttir við ákvörðunina.

Eins og fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda þá hefur Kaupþing kært niðurstöðu ársreikningaskrár hvað þetta varðar til mín, sem fjármálaráðherra, til úrskurðar. Það mál er nú í vinnslu hjá lögfræðingum ráðuneytisins. Málið er ekki komið inn á mitt borð til þess að fara yfir það og því er mjög vafasamt að ég tjái mig um þau mál opinberlega. Það getur leitt til þess að ég verði vanhæfur í að taka afstöðu til kærunnar.

Ég get því ekki, á þeim forsendum, svarað þeim spurningum sem hv. fyrirspyrjandi hefur komið fram með. Mér þykir auðvitað miður að geta ekki svarað spurningunum en ég tel að það væri rangt af mér að gera það í ljósi þess að það mundi gera mig vanhæfan til að úrskurða í málinu.