uppgjör fjármálafyrirtækja í evrum.
Hæstv. forseti. Þessi svör voru náttúrlega ófullnægjandi. Mér finnst að hæstv. ráðherra hefði getað farið almennt yfir þetta mál, a.m.k. hvernig þetta lítur úr frá hans bæjardyrum séð, að þessi ásókn gerist svo mikil sem raun ber vitni hvað varðar íslensk fyrirtæki, grundvallarfyrirtæki í landi okkar, og hvernig bregðast skuli við.
Annar ráðherra, hæstv. viðskiptaráðherra, hefur þegar tjáð sig um málið og heyra bankarnir og fjármálastarfsemin undir hann. Hann hefur sagt að stjórnvöld eigi að gera það sem í þeirra valdi standi til að íslenskum fyrirtækjum sé mögulegt að gera starfsemi sína upp í evrum. Það er hæstv. viðskiptaráðherra sem hefur látið þau orð falla. Hann hefur ekki litið svo á að hann mætti ekki tjá sig um málið fyrr en hæstv. fjármálaráðherra hefði afgreitt það.
En ég tel að við séum að fjalla hér um gríðarlega mikilvægt mál. (Forseti hringir.) Ég veit ekki hvenær ríkisstjórnin ætlar að vakna í sambandi við ýmis stórmál sem fjallað er um á hverjum einasta degi (Forseti hringir.) í samfélaginu.