135. löggjafarþing — 48. fundur,  16. jan. 2008.

neyðarsendar.

267. mál
[14:43]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir þessi svör og sé og heyri á þeim að í samgönguráðuneyti er fullur vilji til að fara í þá vinnu sem þarf að gera fyrir breytingarnar 1. febrúar 2009 og sömuleiðis er í tilskipun Evrópusambandsins um lágmark að ræða eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Það gladdi mig mjög að heyra að samgönguráðherra mun beita sér fyrir því að hér verði gerðar auknar kröfur og þá haldið í það sem sett var hér varðandi neyðarsendi í gúmbjörgunarbáta frá 1979.

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir skýr svör.