framkvæmdir á Reykjanesbraut.
Virðulegi forseti. Fyrirspurn mín til hæstv. samgönguráðherra lýtur að framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Vinna við vegaframkvæmdina hefur legið niðri í nokkurn tíma. Í ljósi breyttra aðstæðna fyrirtækisins sem vann verkið hafa Suðurnesjamenn eðlilega áhyggjur af því að nú kunni framkvæmdin að dragast og að verklok sem fyrirhuguð voru í júlí á þessu ári muni ekki standast ef til þess kemur að bjóða verkið út að nýju.
Í fjölmiðlum hefur reyndar komið fram að hugsanlega muni undirverktakar taka við verkinu þannig að ekki komi til þess að bjóða verkið út aftur. En ekkert er staðfest svo vitað sé í máli þessu. Þess vegna spyr ég hæstv. samgönguráðherra um stöðu þessa máls. Er að vænta þess að niðurstaða fáist á næstunni? Með hvaða hætti er hægt að halda áfram vinnu við tvöföldunina án þess að til komi veruleg seinkun á framkvæmdinni?
Vegna framkvæmda við brautina eru á nokkrum stöðum afmarkaðar vegþrengingar og stórir steinkubbar með blikkandi ljósum sem beina umferðinni fram hjá vegköflum sem unnið var að. Þetta eru svokallaðar hjáleiðir. Allt er þetta að sjálfsögðu nauðsynlegt við þessar aðstæður en getur engu að síður verið hættulegt í skammdeginu, skammdegismyrkrinu, snjókomu og ófærð, líkt og verið hefur undanfarið. Ég spyr því einnig hæstv. samgönguráðherra: Er það tryggt, nú þegar verktakinn er ekki lengur að vinna við Reykjanesbrautina, að fyllsta öryggis vegfarenda sem um brautina fara sé gætt, m.a. á þeim stöðum þar sem áðurnefndar merkingar eru nauðsynlegar?