135. löggjafarþing — 49. fundur,  17. jan. 2008.

framkvæmdir á Reykjanesbraut.

[10:47]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir fyrir að taka þetta mál upp. Ég get fullvissað þingheim um að frá hendi Vegagerðarinnar er allt gert til að þetta mál gangi sem hraðast fyrir sig og tafir verði sem minnstar en viðræður eru á viðkvæmu stigi og þetta getur skipst öðrum hvorum megin við þessa helgi.

Vegagerðin tók, eins og ég sagði áðan, við þessum merkingum og eftirliti með þeim og sér alveg um þann þátt og það verður auðvitað í góðum höndum hjá Vegagerðinni. Þetta er að sjálfsögðu erfitt vegna þess að menn eru að skipta þarna yfir milli akreina og þessara bráðabirgðatenginga. Þess vegna gildir það auðvitað og á alltaf að gilda að menn verða að aka varlega og kannski alveg sérstaklega varlega þarna meðan þetta viðkvæma ástand ríkir. En við skulum vona að öðrum hvorum megin við næstu helgi fáum við niðurstöðu sem gerir það að verkum að tafirnar verði eins litlar og þær geta orðið miðað við stöðu mála.