135. löggjafarþing — 49. fundur,  17. jan. 2008.

vernd lögreglumanna og refsingar við líkamsárásum.

[10:53]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Ef Alþingi tekur ákvörðun um að setja slíkt í lög munu dómstólarnir fara eftir því. Það er undir þingmönnum komið að flytja tillögur um það og ræða það í þingsalnum hvort setja á slík ákvæði í lög. Ég er ekki með áform um það en einstakir þingmenn hafa að sjálfsögðu rétt til þess að flytja slíkt frumvarp og þá yrði það tekið til meðferðar í þinginu.