135. löggjafarþing — 49. fundur,  17. jan. 2008.

staða og horfur í efnahagsmálum.

[11:46]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðna Ágústssyni fyrir að vekja máls á því sem hér er um að ræða. Við frjálslynd gerðum okkur grein fyrir því fyrir kosningar að líklega yrði um veðrabrigði að ræða í efnahagsmálum. Við gerðum ákveðnar tillögur með tilliti til þeirra atriða. Við bentum sérstaklega á vandamál gjaldmiðilsins, flotkrónunnar. Ég var mjög undrandi að hlusta á hæstv. utanríkisráðherra áðan þegar hún minntist ekki á vandamálið í sambandi við myntina. Allir helstu viðskiptajöfrar þessarar þjóðar hafa bent á að það væri eitt helsta vandamálið en nú er það allt í einu horfið út úr umræðunni af hennar hálfu.

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir í Fréttablaðinu í gær, með leyfi forseta:

„… erlenda ráðgjafa hafa varað íslensk stjórnvöld við að sú óhagstæða hagstjórn sem hér hafi verið til langs tíma geti leitt til þess að tiltrú alþjóðafjármálamarkaðar á íslensku myntinni þverri.“

Og ég spyr: Hvaða ráðgjafar voru þetta? Af hverju hefur ekki verið farið eftir því eða gerð grein fyrir því hvað um er að ræða?

Við frjálslynd lögðum áherslu á að til þess að vernda borgarana í landinu yrðu þeim búin sömu lánakjör og gilda í okkar helstu nágrannalöndum. Ekkert slíkt hefur gerst. Óöryggi vegna flotkrónunnar, gjaldmiðilsins, og það að ekki hefur verið hirt um að gæta að hagsmunum og öryggi hins almenna borgara er hið alvarlegasta sem fram undan er í íslenskum efnahagsmálum.

Sem betur fer er íslenskt efnahagslíf sterkt þótt það hafi verið veikt að mörgu leyti vegna gjaldmiðilsins og að ekki hefur verið hirt um framleiðsluatvinnugreinarnar.

Það var rétt hjá hæstv. utanríkisráðherra að þenslan og viðskiptahallinn sem hefur verið er langtímavandamál sem vinna verður úr. Það eru kreppuboðar fram undan en ríkisstjórnin (Forseti hringir.) siglir ekki frá þeim.