varnarmálalög.
Hæstv. forseti. Hæstv. utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar sagði á sínum tíma að til stæði að efna til þverpólitískrar umræðu um stefnumótun á sviði öryggismála. Þetta var útlistað í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Hvergi bólar á slíkri vinnu. Hins vegar er nú komið fram frumvarp frá formanni Samfylkingarinnar og hæstv. utanríkisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands þar sem við erum geirnegld inn í NATO-hernaðarsamvinnu til frambúðar, þar sem lögbundinn er hernaðarsamningurinn frá 2006, þar sem lögbundnar eru heimildir til heræfinga á Íslandi, þar sem lögbundinn er aðgangur herja NATO að íslensku landsvæði og um það samkvæmt varnarþörf eins og hún er skilgreind af hernaðarbandalaginu NATO.
Nú beini ég þeirri spurningu til hæstv. utanríkisráðherra og formanns Samfylkingarinnar: Var það þetta sem átt var við þegar kjósendum var heitið því að efnt yrði til þverpólitískrar aðkomu að stefnumótun Íslendinga í varnarmálum á komandi árum?