varnarmálalög.
Virðulegi forseti. Ég hef orðið þess nokkuð vör í umræðunni hér í dag hjá fleiri en einum þingmanni sem tekið hefur til máls, m.a. hjá þeim sem talaði síðast, að með frumvarpi til varnarmálalaga sé verið að lögfesta varnarsamninginn frá 1951, verið að lögfesta aðildina að NATO og lögbinda heræfingar hér á landi. Hefur þetta verið nefnt sem svo að nú værum við lögbundin og geirnegld í faðmi NATO og Bandaríkjanna með þessar heræfingar. Þetta er byggt á ákveðnum misskilningi vegna þess að við erum þegar bundin þjóðréttarlegri skuldbindingu hvað varðar aðildina að NATO og varnarsamningurinn var settur í lög árið 1951 þannig að það er lögbundinn samningur nú þegar.
Hvað varðar varnaræfingarnar hér á landi þá er þetta fyrst og fremst spurning um heimildarákvæði til þess að þessar æfingar geti farið fram. Síðan er það ákvörðun stjórnvalda á hverjum tíma, með samningum við aðildarríki NATO eða eftir öðrum leiðum, hvort þau vilja láta þessar æfingar fara fram. Að sjálfsögðu gilda um þessar æfingar almenn íslensk lög. Það er ekki verið, getum við sagt, að víkja öðrum lögum til hliðar hvað varðar þessa starfsemi.