ástandið á Gaza-svæðinu.
Hæstv. forseti. „Hvernig getum við brugðist við gagnvart þeim atburðum sem nú eiga sér stað á Gaza-ströndinni, daglegum fjöldamorðum Ísraelshers, algerri einangrun þessa þéttbýlasta svæðis heims, skorti á helstu lífsnauðsynjum, lyfjum og lækningatækum og nú síðast lokun fyrir eldsneyti til svæðisins sem haft hefur í för með sér að raforkuverin hafa stöðvast.“
Ég las, með leyfi forseta, upp tilvitnun í bréf sem Sveinn Rúnar Hauksson læknir, formaður félagsins Ísland – Palestína, hefur ritað utanríkisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands. Í bréfinu segir enn fremur, með leyfi forseta:
„Eldsneytis- og rafmagnsskortur hefur í för með sér að öll starfsemi lamast, þar á meðal starfsemi sjúkrahúsa og heilsugæslu. Það sem ef til vill er alvarlegast varðar vatnsveituna og skolpfrárennsli því að hvort tveggja er háð rafmagnsdælum. Þegar skrúfað er fyrir eldsneyti og rafmagn rennur ekkert drykkjarvatn til íbúanna og skolpið safnast fyrir. Afleiðingar þessa verða geigvænlegar fyrir alla íbúa svæðisins sem eru um 1,7 milljónir talsins og út fyrir Gaza-ströndina. Drepsóttir geta brotist út svo eitthvað sé nefnt. Það virðist vera stefna Ísraelsstjórnar að breyta þessu stærsta fangelsi heims í útrýmingarbúðir.
Á hvern hátt hyggst utanríkisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands bregðast við þessum atburðum og stefnu Ísraelsstjórnar gagnvart íbúum Gaza-svæðisins?“
Hæstv. forseti. Ég vil gera þessi orð og þessar spurningar sem Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður félagsins Ísland – Palestína, beinir til hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar að mínum.