135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

ástandið á Gaza-svæðinu.

[15:06]
Hlusta

utanríkisráðherra (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ögmundi Jónassyni fyrir að vekja athygli á þessu máli sem er full ástæða til vegna þess að ástand mála á Gaza-ströndinni er skelfilegt og hefur sjálfsagt aldrei verið verra en það er einmitt núna. Til þess að grennslast fyrir um stöðu mála þar hringdi ég í morgun í Karen Abuzaid, sem er framkvæmdastjóri flóttamannasamtaka Sameinuðu þjóðanna á herteknu svæðunum í Palestínu, og hún sagði að í þau sjö ár sem hún hefði verið þarna hefði ástandið aldrei verið verra. Það benti ekkert til þess að það mundi batna á komandi dögum, þvert á móti mundi það líklegast versna, m.a. vegna þess að flóttamannastofnunin verður óstarfhæf frá og með miðvikudegi því að þá hefur hún ekki lengur eldsneyti, hún hefur ekki lengur umbúðir utan um matvæli til að koma inn á svæðið. Flest bendir því til að þetta muni versna.

Ég lít svo á að auðvitað sé eðlilegt að bæði Ísraelsmenn og Palestínumenn reyni að gæta öryggis íbúa sinna og stjórnvöld í Ísrael segjast vera að reyna að stöðva eldflaugaárásir en þau gera það með hætti sem ekki er hægt að sætta sig við. Þessar nýjustu aðgerðir Ísraelsmanna eru hóprefsing og hóprefsingar eru ólöglegar aðgerðir samkvæmt alþjóðamannúðarlögum. Þess vegna hljótum við að koma á framfæri áhyggjum okkar og mótmælum við því að þannig sé staðið að málum að það stefni í voða öryggi og lífi óbreyttra borgara. Ég mun reyna að má sambandi við Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, og koma þessum sjónarmiðum á framfæri við hana.