ástandið á Gaza-svæðinu.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þessi svör þar sem staðfest er að svo sé litið á í Stjórnarráði Íslands að ástandið á Gaza-svæðinu hafi aldrei verið alvarlegra en nú. Ég leyfi mér að vara við því að stilla upp sem eins konar jafningjum eða leggja að jöfnu aðgerðir Ísraela annars vegar og Palestínumanna hins vegar. Á undanfarinni viku hafa tæplega 40 manns verið drepnir af hálfu Ísraela og margir þeirra óbreyttir borgarar. Ég hef verið að skoða yfirlýsingar sem fram hafa komið í palestínskum fjölmiðlum yfir helgina og þar er að finna ágætt viðtal við Mustafa Borghouti, sem komið hefur hingað til lands, forseti læknishjálparsamtakanna og var fyrrverandi ráðherra í þjóðstjórninni sem bæði Fatah og Hamas áttu aðild að, og hann kallar (Forseti hringir.) á þjóðir heims að mótmæla stríðsglæpunum sem nú fara fram. Ég spyr: Skildi ég það rétt hjá hæstv. utanríkisráðherra að hún hygðist kalla sendiherra Ísraels á Íslandi á sinn fund til að mótmæla þessum (Forseti hringir.) hryllingsverkum og þessum stríðsglæpum sem Ísraelar eru ábyrgir fyrir?