135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

málefni lögreglunnar.

[15:21]
Hlusta

Dýrleif Skjóldal (Vg):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessi svör. En nú er það svo að þó að 81 lögreglumaður útskrifist í vor, þ.e. ef þeir ná prófum, þá er það líka svo að það komu ekki nema 37 inn í skólann nú í haust. Það virðist vera að þeir sem sækja um komist ekki allir að vegna þess að þeir hafa það ekki til að bera það sem sóst er eftir. Þegar undanþágur eru veittar þá eru þetta kannski 23 af 79 sem hægt er að nota af þeim mönnum sem þurfa að leita undanþágna.

Það hlýtur að auka öryggi lögreglumanna að starfa við hlið þeirra sem eru lærðir til þess að sinna þessu starfi og kunna að bregðast við á réttan hátt. Ég saknaði þess að hæstv. ráðherra fór ekki í það að velta aðeins fyrir sér (Forseti hringir.) hvað væri best gert til þess að laða fólk betur að lögregluskólanum og ég held að lykillinn að því sé að hækka laun lögreglumanna. (Forseti hringir.)