stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Það veldur mér vonbrigðum að hv. formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, Arnbjörg Sveinsdóttir, skuli ekki deila neinum þeim áhyggjum sem ég hef lýst hér en ég vonast nú til að nefndarstarfið þróist á annan veg. Eins og ég skil frumvarpið liggur það fyrir að jafnvel afli til eigin neyslu fari þarna undir, við það eina að ég leigi bát til að afla til eigin neyslu fari það þarna undir.
Hv. þingmaður sagði að það væri mikilvægt fyrir landsbyggðina og því erum við örugglega öll afar sammála en við blasir að kvóti verður ekki til staðar, ekki verður framboð á kvóta næsta sumar. Í ágúst sl. lentu þessir atvinnurekendur eða fiskveiðiferðaþjónustumenn í vandræðum vegna kvóta og það er algjörlega ljóst að það verður erfiðara næsta sumar. Hvað vill hv. þingmaður gera í þeim efnum? Er hv. þingmaður sammála því að kerfið taki yfir allan pakkann, ef ég má orða það þannig, þ.e. frá því að menn veiði einhver hundruð kíló á dag á þessum bátum sem eingöngu eru gerðir út á sjóstöngina frá Tálknafirði, Suðureyri, Bolungarvík og víðar, yfir í það að veidd séu fáein kóð, fáein kíló? Ég sé ekki betur en að frumvarpið taki yfir allan þennan pakka. Það tel ég alveg óásættanlegt og ég spyr hv. þingmann hvort hún vilji bregðast við því með því að setja til að mynda einhver mörk sem heimild er upp að án þess að fara í gegnum allt þetta skrifræði sem ella blasir við?