135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

272. mál
[16:38]
Hlusta

Arnbjörg Sveinsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nei, ég hef ekki sömu áhyggjur og hv. þm. Atli Gíslason. Það er sjálfsagt að við athugum hvort þetta breyti í einhverju stöðu þeirra fiskveiða sem við höfum leyft þar sem menn veiða til eigin neyslu og við förum yfir það í nefndinni. Það er ekki meiningin með frumvarpinu.

Hins vegar vil ég benda á að það er þó nokkurt magn sem veitt er undir formerkjum tómstundaveiða. Ég er ekki með þær tölur á hreinu en fram kemur í umsögn Reiknistofu fiskmarkaða frá því í febrúar 2007 að til Reiknistofu fiskmarkaðar hafi farið í gegn 163 tonn af fiski veiddum á sjóstöng og aflaverðmæti þess afla hafi verið (Gripið fram í.) 23,7 millj. kr. Það nær náttúrlega ekki yfir allan þann afla sem veiðist með þessum hætti. Ég vil einungis benda á að ef við lítum til markmiðs fiskveiðistjórnarlaganna er mjög skynsamlegt að hafa yfirlit og stjórn á því hversu mikið magn kemur á land með þessum hætti og hvernig við nýtum fiskstofnana okkar. Það er eðlilega í samkeppni við þær atvinnuveiðar sem stundaðar eru. Við verðum auðvitað að huga að því hversu mikið magn (Forseti hringir.) verður veitt með þessum hætti, ferðaþjónustuveiðar eða frístundaveiðar.