135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

272. mál
[16:51]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson kallar hér fram í hvort verið sé að stinga menn í bakið. Ég hygg nú að það sé ekki markmiðið með frumvarpinu að gera það og geri þau orð ekki að mínum. En ég vil þó víkja að þessu máli og þá ekki síst með hagsmuni hinnar nýju atvinnugreinar í huga.

Hv. þm. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og fulltrúi flokksins í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, fór ítarlega í gegnum grundvallaratriði í málinu, hvort þær aðgerðir sem boðaðar eru í frumvarpinu séu nauðsynlegar til þess að ná fram meginmarkmiðum fiskveiðistjórnarkerfisins, (Gripið fram í: Hann talaði ekkert um mannréttindabrot.) að vernda fiskinn í landinu. Fiskurinn á sín réttindi. Hvort aðgerðirnar eru andstæðar því að vernda fiskinn. Nei. Hvort veiðar ferðaþjónustuaðila skapi ekki arðbæran grundvöll eða rekstur á fiskveiðistjórnarkerfinu. Hann kallaði eftir tölulegum upplýsingum hvað það varðar, hvort óhagkvæmara væri að veiða fiskinn með þessum hætti fyrir þjóðarbúið. Það liggur ekki fyrir.

Þetta eru tvö, þrjú grundvallaratriði íslenska fiskveiðistjórnarkerfisins, að vernda fiskstofnana í landinu og sjálfbæra nýtingu auðlindanna, að hún sé nýtt samkvæmt lögum um sjálfbæra þróun, að hún efli atvinnulíf og byggð um allt land og í þriðja lagi að nýting á auðlindinni sé hagkvæm og arðbær. Öll þessi þrjú atriði ráða því hvað er hagkvæmast að gera í sambandi við sjávarútveginn.

Ég tek því undir þau orð hv. þm. Atla Gíslasonar að svör við þessu þurfi að liggja fyrir áður en fram koma ný frumvörp um skerðingu eða takmörkum á atvinnugreinum sem vilja nýta sér sjávarauðlindina með þeim hætti sem við þekkjum og erum að byggja upp.

Atvinnuvegur sem tengist sjóstangaveiði hefur verið að byggjast upp nú á síðustu árum og miklar vonir eru bundnar við hana. En það er alveg ljóst að þessi nýja atvinnugrein þarf að leggja í gríðarlega miklar grunnfjárfestingar, kaup á bátum, markaðssetningu og margt fleira. Það tekur allt tíma og ekki er hægt að ætlast til þess að greinin geti á einhverjum örfáum árum greitt þann stofnkostnað.

Það skiptir því máli að aðgengi að þeirri auðlind, sem við erum hér að tala um og gert er út á, sé með þeim hætti að það kyrki ekki nýja atvinnugrein í fæðingu með því að byrja að krefja hana um að greiða fullu verði kaup á aflaheimildum, aflaheimildum sem aðrar atvinnugreinar sjávarútvegsins fengu með réttu eða röngu í upphafi vega þess kvótakerfis sem verið er að vísa til. Frumvarpið er auk þess bara einn liður í kvótakerfinu sem við höfum talið vera ranglátt í heild sinni.

Ég vil ítreka spurningar mínar til hæstv. sjávarútvegsráðherra, um tölulegan grunn þessa frumvarps. Hve mikið er gert ráð fyrir að verði veitt? Hvernig er fjárhagsstaða sjóstangaveiðinnar? Hvernig er hún í stakk búin til að taka á sig þessar opinberu álögur, að greiða sérstaklega fyrir fiskveiðiheimildirnar? Verður því mætt með einhverjum hætti? Það var jú gert með fiskeldið, þorskeldið, þá var sérstökum kvóta úthlutað til þeirra aðila sem máttu síðan veiða þorsk til áframeldis. Fordæmin eru fyrir hendi innan núverandi kerfis, að úthluta ákveðnum fiskveiðiheimildum til þessarar atvinnugreinar.

Ég vil minna á þær miklu væntingar sem bundnar eru við þessa grein. Gert er ráð fyrir því að á árinu 2008 komi um 3.000 manns, veiðimenn, til landsins. Ég vil ekki tala niður til þeirra þótt það séu útlendingar sem komi og veiði hér og leggi fjármagn til. Við seljum jú fiskinn okkar til útlanda og það eru útlendingar sem borða hann þar. Mér finnst það því hið besta mál að hingað komi erlendir aðilar og veiði á sjóstöng.

Gert er ráð fyrir því að gjaldeyristekjur af þessum 3.000 mönnum geti með beinum hætti verið 1,5–2 milljarðar kr. eða þar um bil. Þetta snertir þær byggðir þar sem verið er að skerða möguleika til að nýta sér auðlindina til atvinnusköpunar í gegnum kvótakerfið og niðurskurð kvóta. Áður en gripið er til jafníþyngjandi aðgerða gagnvart nýrri grein verða menn að gera sér grein fyrir hvað þeir eru að gera og hvernig þeir ætla þá að fylgja því eftir. Þeir geta ekki unnið þetta á grunni einhverrar sértrúarhugsjónar eða hugmyndar um að allt verði þetta að vera inni í þessu óréttláta kvótakerfi, sama hvað tautar og raular.

Einnig má velta því fyrir sér hvort hægt sé að fara svipað að með þennan afla og með Hafró-aflann, verðmæti þess afla sem bátar koma með að landi, undirmálsfisk o.s.frv., fer til Hafrannsóknastofnunar. Velta má því fyrir sér að andvirði þessa fisks renni í sjóð í viðkomandi byggðarlagi til eflingar atvinnulífi þar ef menn vilja ekki að ferðaþjónustuaðilinn geti fénýtt aflann af því að hann hefur ekki greitt fyrir aflaheimildir.

Ég vil benda á að sá afli sem þessir bátar fá er af margvíslegum toga og gæðin geta verið mjög misjöfn. Verðgildið á aflaheimildum, hvort sem þær eru leigðar eða keyptar, tekur í rauninni ekkert tillit til gæða þess afla sem verið er að landa. Þetta er innfjarðarafli og innfjaðarfiskur, mismunandi að stærð, gerð og gæðum.

Það er því mjög ósanngjarnt út frá þeim grunni, finnst mér, að krefjast þess að umræddir aðilar kaupi eða leigi aflaheimildir á sömu kjörum og gerist á almennum mörkuðum ef menn vilja vinna á þeim grunni. Mörg atriði eru því óljós í þessu máli og það á að draga þau fram og kanna áhrif frumvarpsins áður en það er lagt fram.

Hver er þá munurinn á því að veiða fisk bara í strandveiðum, að standa á bryggjunni og veiða? Við erum að rækilega athuguðu máli að fara út í býsna mikla vitleysu, ef fylgja á því sem lagt er upp með í frumvarpinu.

Hæstv. sjávarútvegsráðherra sagði að verið væri að koma til móts við þau fyrirtæki sem hafa verið að byggja sig upp varðandi ferðaþjónustu og stangaveiði á annan hátt. Það er nú ósköp lítið sem verið er að gera þar, það verð ég að segja. Ég er hér með útprentun á frétt frá 28. júní þar sem talað var um klasaverkefnið Sjávarþorpið á Suðureyri. Þar er vitnað í Elías Guðmundsson. Hætta verður því verkefni vegna þess að opinberir aðilar komu ekki að því máli eins og vænst hafði verið. Mér er ekki kunnugt um neinar sértækar aðgerðir af hálfu opinberra aðila til þess að styðja við uppbyggingu á þeim ferðaþjónustuverkefnum sem þarna er um að ræða. Jafnvel síður en svo því að með sameiningu Sparisjóðs Vestfjarða og Sparisjóðs Keflavíkur fæ ég ekki betur séð en erfiðara sé orðið að eiga viðskipti við sparisjóðinn, því að Sparisjóður Keflavíkur geri mun harðari kröfur um veð, arðsemi o.s.frv. Ég veit ekki hvort satt er, en þessar sögur berast og ég hef af því áhyggjur og kæmi mér reyndar ekkert á óvart að þetta væri svo. Hið opinbera er því ekki að koma svo mjög að þessum málum.

Ég tek því undir hin afar sterku og rökstuddu varnaðarorð sem hv. þm. Atli Gíslason hafði hér áðan í ræðu sinni um að allir þættir þessa máls verði grandskoðaðir og áhrif á uppbyggingu og þróun atvinnugreinarinnar, möguleika hennar, sem menn bundu miklar vonir við, og ekki síst áhrif á sjávarbyggðirnar á Vestfjörðum. Ekki veitir af. Það verði vandlega skoðað áður en frumvarp um að skattleggja með beinum hætti ferðaþjónustu sem tengist sjóstangaveiðunum verður að lögum. Ég hélt að sú atvinnugrein þyrfti á einhverju öðru að halda en þeirri lagasetningu sem hæstv. sjávarútvegsráðherra beitir sér fyrir. Ég skora á menn, og tek undir orð hv. þm. Atla Gíslasonar þess efnis, að hægja á ferðinni, kalla frumvarpið til baka og reyna að vinna heimavinnuna sína hvað varðar uppbyggingu þessarar atvinnugreinar sem byggist á sjóstangaveiði frá sjávarútvegsplássunum.