stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Hv. þingmaður hefur kannski ekki heyrt hvað ég sagði varðandi aðkomu fjármagns að uppbyggingu atvinnufyrirtækja hér. Ég nefndi ekki sérstaklega kvótakaup eða annað því um líkt. Ég benti á að þessar nýju atvinnugreinar hafa ekki fengið svo mikið framlag af opinberu fé. Ég benti líka á að fjárstuðningur heima fyrir, sem byggðist oft og tíðum á viðskiptavelvild sparisjóðanna, ekki síst á Vestfjörðum, gæti einnig verið í nokkuð öðru ljósi eftir að Sparisjóður Vestfirðinga hefur sameinast Sparisjóði Keflavíkur.
Ég hef heyrt að gerðar séu harðari kröfur til veðhæfni og annars því um líks upp á almenna fjármagnsfyrirgreiðslu til atvinnulífs eftir það. Menn fagna enn að Sparisjóður Bolungarvíkur, þar sem hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er — ætli hann eigi ekki bréf í Sparisjóði Bolungarvíkur og ég er viss um að við erum þar sammála, ég og hæstv. sjávarútvegsráðherra, að við skulum svo sannarlega af öllu okkar afli standa vörð um heimasparisjóðina. Það munu menn reyna vítt og breitt um landið ef sparisjóðirnir verða keyptir upp, þeir gleyptir af græðgisöflunum. Sparisjóðirnir hafa fyrst og fremst verið þjónustustofnanir í heimabyggð, lagt áherslu á það, og þá (Forseti hringir.) munum við verja með kjafti og klóm eins og við getum.