stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég vil fagna framkomnu frumvarpi hæstv. sjávarútvegsráðherra. Ég tel að það tryggi meira réttlæti í atvinnugreininni. Fram að þessu hefur verið óréttlæti varðandi veiðar þessara báta gagnvart þeim sem eru á veiðum og hafa þurft að kaupa og leigja kvóta hverju sinni.
Ég tel jafnframt að þegar þeir bátar sem þurfa að leigja sér kvóta, þeir eru á veiðum á sama tíma og bátar sem stunda sjóstangaveiðar og annað — mér finnst þetta spurning um réttlæti. Ef sjóstangaveiðibátur fer á sjó með þýska ferðamenn er réttlætanlegt að trillukarlinn á bátnum við hliðina á honum þurfi að leigja sér kvóta dýrum dómi en þýski ferðamaðurinn þurfi ekki að greiða annað en það sem hann borgar útgerðinni sem fer með hann? Talað var um það áðan að þetta mundi kosta svo og svo mikið. Ég spyr: Ef við förum til útlanda þurfum við þá ekki að greiða fyrir það sem við gerum? Þurfum við ekki að greiða fyrir það sem við kaupum? Um það snýst þetta mál, ferðamenn borga fyrir það sem þeir gera.
Það vekur einnig athygli mína að ekki sé gerð breyting á 6. gr. laganna. Síðari málsgrein 6. gr. laga um stjórn fiskveiða hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Ráðherra er heimilt að ákveða árlega að á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta teljist afli ekki til aflamarks eða krókaaflamarks og veiðidagar ekki til sóknardaga, enda sé aflinn einungis fénýttur til að standa straum af kostnaði við mótshaldið.“
Mér finnst fullt tilefni til að sjávarútvegsnefnd Alþingis skoði sérstaklega hvort ástæða sé til þess að halda þessari málsgrein inni.
Eins og fram kom í ræðu hæstv. sjávarútvegsráðherra er það meginmarkmið frumvarpsins að kveða á um það með skýrum hætti að það teljist veiðar í atvinnuskyni þegar eigandi eða útgerð báts tekur gjald af þeim sem veiðarnar stunda. Allur afli sem kemur á sjóstangaveiðimótum er seldur á markaði. Þetta eru oft mörg tonn þó að hv. þingmönnum, sem hafa verið að fjalla um þetta hér, finnist það lítill hluti þá er það stór hluti fyrir þá sjómenn sem þurfa að kaupa sér og leigja þegar upp er staðið aflaheimildir. Þetta er stór hluti sem svo er hægt að selja á mörkuðum. Ég spyr: Er það réttlætanlegt að allur þessi afli á sjóstangaveiðimótum njóti undanþágu?
Ég fagna framkomnu frumvarpi og því að sátt skuli vera innan ferðaþjónustunnar um það. Ég held að frumvarpið sé líka mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna í landinu. Eins og hv. þm. Atli Gíslason kom inn á hér áðan og var að tala um að þessar veiðar — þetta yrði erfitt fyrir byggðirnar fyrir vestan næsta sumar. En ég skil það þannig að þetta taki ekki gildi fyrr en 1. september að hausti. Annars er ég ánægð með að þetta skuli koma fram.