stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Eins og ég hef margítrekað þá er tilgangur þessa frumvarps ákaflega skýr. Hann er sá að opna leið til þess að fénýta afla þegar þannig háttar til að menn leigja bátinn sinn til þess að geta staðið að því sem áður hefur verið kallað tómstundaveiðar. Í dag er það þannig að tómstundaveiðarnar heimila mönnum ekki að fénýta aflann. Ef þessar heimildir til þess að fénýta aflann eru ekki til staðar þá þýðir það að möguleikar manna til að auka tekjur sínar í þessari atvinnugrein eru ekki fyrir hendi.
Það getur vel verið að menn þurfi að skoða eitthvað betur sjálfan lagatextann í þessu sambandi. Vegna þess að sú atvinnustarfsemi sem lögunum er ætlað að ná til byggir á því að menn kaupa sér aðgang að bátum, fá að sigla á miðin og veiða síðan og það eru óumdeilanlega bátar sem eru leigðir í þessu sambandi. Þess vegna er þetta orðalag valið.
Kjarni málsins er eins og ég hef margoft sagt (Forseti hringir.) að við erum með þessu að opna leið til þess að fénýta aflann í þágu þessarar atvinnustarfsemi.