stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Í þessu felst nú allur stóri misskilningurinn. Það er ekki verið að reyna að íþyngja þessari atvinnugrein. Þvert á móti er verið að reyna að opna henni leið. Í lögunum í dag er þetta mjög skýrt. Þeir sem stunda tómstundaveiðar geta gert það til eigin neyslu og svo framvegis en þeir hafa ekki heimild til þess að fénýta. Þetta eru út af fyrir sig ekki tómstundaveiðar. Þetta er sem betur fer atvinnurekstur. Við vitum að mannlífið og atvinnulífið á landsbyggðinni mun auðvitað ekkert byggjast á neinum tómstundaveiðum. Það byggir á alvöruatvinnurekstri. Þess vegna erum við að horfa til aukningar þarna á þessu sviði og að menn komi í þúsundavís til þess að stunda veiðarnar á þessum bátum. Þá skiptir miklu máli að þessi afli sé nýttur sem allra best og skynsamlegast, að menn fái sem mest fyrir hann og hafi þess vegna möguleika á að selja hann og hafa af honum tekjur.
Ég veit að þetta skiptir miklu máli fyrir ýmsar vinnslur á þeim stöðum sem þetta hefur tíðkast og þeir hafa af því mikla hagsmuni að menn líti á þetta sem atvinnugrein. Þeir hafa, eins og ég, trú á því að þetta geti orðið arðvænleg atvinnugrein en ekki, eins og mér finnst alltaf vaka í umræðum af hálfu hv. þingmanns, að þetta sé atvinnugrein á slíkum brauðfótum að hún þoli ekki að starfa inni í því rekstrarumhverfi sem önnur sjávarútvegstengd atvinnustarfsemi fer fram í.