stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Þetta kemur úr hörðustu átt, frá hæstv. sjávarútvegsráðherra, að segja að ég hafi ekki trú á þessari atvinnugrein. Ég veit ekki betur en að í aðdraganda síðustu kosninga hafi ég einmitt lagt áherslu á að framtíðarmöguleikar Vestfirðinga væru ekki hvað síst í ferðaþjónustu og þá einmitt þeirri ferðaþjónustu sem við erum að tala um. Þess vegna þurfum við að gæta okkar á að íþyngja henni ekki í upphafi. Það þarf heldur að hlynna að henni og gefa henni forskot. Þá sagði hæstv. sjávarútvegsráðherra í grein á bloggsíðu sinni um þessar áherslur mínar, með leyfi forseta, 28. mars:
„Hvað íbúar Vestfjarða eiga svo að gera hinn hluta ársins“ — þegar ég hélt fram ferðaþjónustunni — „var hins vegar í svörtustu þokumóðu.“
Ég óttast svolítið að þetta sé allt of mikið viðhorf hæstv. ráðherra sem birtist í þessari grein hans í fyrravor, hann hafi ekki trú á ferðaþjónustunni, leggi meira upp úr að fylgja eftir hinni botnlausu trú sinni á kvótakerfið og þeim prinsippum sem þar eru lögð til grundvallar en að vita hvernig megi styðja þessa (Forseti hringir.) nýju atvinnugrein sem skiptir miklu máli.