135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

272. mál
[19:05]
Hlusta

Jón Magnússon (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það kom mér ekki á óvart, hæstv. sjávarútvegsráðherra, að á þeirri tæpu mínútu sem hæstv. sjávarútvegsráðherra hafði áðan gæti hann ekki rennt stoðum undir eða komið með fullnægjandi rök sem sýndu fram á að almannahagsmunir réttlættu þetta lagafrumvarp hans. Fyrst ekki var um þau að ræða í upphafsræðu hæstv. ráðherra eða í svarræðu hans áður dugði mínúta að sjálfsögðu ekki, og mundi jafnvel ekki duga klukkutími þó að hann hefði hann til að réttlæta að sett yrðu þessi skerðingarlög á atvinnufrelsi manna. Það er einfaldlega þannig að hvernig svo sem menn vilja snúa þessu við er þetta skerðing á atvinnufrelsinu — og skerðing á atvinnufrelsi verður ekki sett nema það sé með einhverjum hætti réttlætt af almannahagsmunum. Og það skortir á þau atriði.