stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Ég ætlaði ekki að segja mikið meira í þessari umræðu en ég hef þegar sagt en vegna ummæla hv. þingmanns Grétars Mars Jónssonar þar sem hann sagði að ég stæði í ræðustól Alþingis til að verja hagsmuni sægreifa eins og hann orðaði það vil ég aðeins ítreka þau orð sem ég hef viðhaft í þessari umræðu. Þau eru: Við erum með ákveðið kerfi í sjávarútvegi okkar, ákveðin lög um stjórn fiskveiða sem ég sjálfur tel að þurfi að endurskoða og hef sagt það a.m.k. fjórum sinnum í dag. Varðandi þessa nýju atvinnugrein — við erum ekki að tala um tómstundaveiðar — öfluga og mikla atvinnugrein sem fer vaxandi, tel ég mjög eðlilegt að þeir sem veiða á þessum bátum fari undir sömu reglur og aðrir sem eru að veiða í þessu kerfi.
Við getum hugsað okkur trillu — hugsum okkur mann sem er á þriggja tonna trillu, hann er á skaki og kemur í land með aflann sinn, eitt tonn eins og ég sagði áðan. Síðan kemur annar bátur að landi með eitt tonn en hann er algjörlega utan kerfisins. Það er þetta sem ég tel ekki eðlilegt og í þessu er fólgin ákveðin mismunun innan þess kerfis sem við höfum. Það er það sem ég hef lagt áherslu á. Menn tala um þessa atvinnugrein, nefna Vestfirði, 2–3 staði, hún hefur byrjað á Tálknafirði, er komin á Suðureyri og Súðavík og það er algjörlega ljóst að þessi atvinnuvegur verður ekki bara stundaður á þessum þremur stöðum. Þetta mun vaxa, t.d. á öllu Snæfellsnesi, í öllum bæjunum þar, á Faxaflóa, Austfjörðum og Suðurnesjum. Þess vegna tel ég skynsamlegt að setja ákveðnar reglur um þetta áður en þetta er orðið of mikið. Svo þegar reglan kemur er komið mjög mikið ósætti og óánægja, ekki síst hjá þeim sem fyrir eru með litla báta og eru að veiða í þessu erfiða kerfi. En ég stend ekki hér í þeim tilgangi, eins og hv. þingmaður sagði, að verja sægreifana.
Fyrst það kemur hins vegar upp vil ég líka nefna að ef við breytum fiskveiðistjórnarkerfinu þýðir ekkert að segja: Nú bara breytum við öllu, bindum öll skip og enginn hefur neina heimild til að veiða. Við þurfum að horfa á þær aðstæður sem eru fyrir hendi.