stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Því hefur ekki verið svarað, hvorki af hæstv. ráðherra né hv. þingmanni, Karli V. Matthíassyni, varðandi réttindi á umrædda báta. Eins og fram kemur í frumvarpinu hefur ráðherra möguleika á því að leyfa mönnum að vera réttindalausir á þessum bátum.
Verið er að gera atvinnugreininni erfitt fyrir með því að kvótasetja hana. Það er verið að mismuna. Hvort sem það eru séra Karl og Karl eða Jón og séra Jón í þeirri dæmisögu þá er ég ekki að tala um að Jón Magnússon eigi kvóta eða ekki. Það er ekkert verið að tala um það. Þetta er útúrsnúningur hjá séra Karli en ég ætla ekki að segja að hann hafi átt kvóta eða sé (KVM: Sé sægreifi.) sægreifi.
Með frumvarpinu er verið að mismuna fólki og erfiðara verður fyrir menn að starfa við þetta ef þeir þurfa að leigja sér kvóta eða að eiga kvóta sem þeir geta jafnvel ekki fengið, eins og ég hef áður minnst á. Ég segi hiklaust að þeir eigi að fresta frumvarpinu, draga það til baka þangað til þeir eru búnir að svara mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna um það hvernig þeir ætli að breyta fiskveiðistjórnarkerfinu. Það er borðleggjandi að við Íslendingar verðum að breyta því alveg frá grunni. Við verðum að tryggja að allir sem eiga báta og uppfylla þau skilyrði sem gerð eru í sambandi við öryggismál, skipstjórnarréttindi, vélstjórnarréttindi, báta með haffærisskírteinum, hafi sama rétt til að stunda veiðar við Ísland.
Það er augljóst og þess vegna á að draga frumvarpið til baka. Þið eigið ekki að valda þjóðinni meiri skaða en orðinn er því að þetta mun bara þýða (Forseti hringir.) fleiri og hærri skaðabótakröfur.