135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

272. mál
[19:24]
Hlusta

Karl V. Matthíasson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það liggi nú í augum uppi að þeir sem róa bátum við Íslandsstrendur verða að hafa einhverja getu og kunnáttu til þess. Ég bendi á að frumvarpinu verður vísað til sjávarútvegsnefndar, það rætt þar og sett verða skýr ákvæði um hvaða reglur gilda um að menn fari að veiða við strendur landsins.

Ég tel það algjörlega útilokað að sjávarútvegsnefnd muni hleypa því í gegn að Jón og séra Jón fái bara að sigla á bátum á Íslandsmiðum án þess að hafa nokkra þekkingu til eins eða neins, öryggismála eða annars. Ég vona að hv. þingmaður leggi því máli lið þegar frumvarpið verður til umfjöllunar í nefndinni.

Ég hef verið þeirrar skoðunar, og er þeirrar skoðunar, að endurskoða þurfi fiskveiðistjórnarkerfið sem við búum við. En á meðan það er eins og það er, hlýtur eitt yfir alla að ganga sem stunda veiðar við Ísland.