135. löggjafarþing — 51. fundur,  22. jan. 2008.

kosningar til Alþingis og kosningar til sveitarstjórna.

133. mál
[18:58]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Bæði landskjörstjórn og yfirkjörstjórn gegna ákaflega mikilvægu hlutverki í framkvæmd lýðræðislegra kosninga. Með hliðsjón af auknu gagnsæi og til þess að taka af allan vafa þá er ég alveg sammála þessu frumvarpi. Ég vil meira að segja ganga lengra, ég vil að þau framboð sem ekki eiga fulltrúa á Alþingi geti líka fengið áheyrnarfulltrúa bæði í landskjörstjórn og yfirkjörstjórn. Ég mundi þá leggja til að hv. nefnd sem fær þetta mál til umsagnar breytti þessu þannig að það standi: Framboð sem ekki á kjörinn fulltrúa í landskjörstjórn er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í henni. Sem sagt að það yrðu ekki bara þeir sem eiga sæti á Alþingi.

Svo er ég á móti því að nota þá niðurstöðu sem varð í kosningunum í vor til þess að breyta lögum. Mér finnst að þetta eigi að gilda almennt þannig að allir þeir sem leggja á sig að bjóða fram til þings eða sveitarstjórna eigi rétt á að fylgjast með hvernig kosningarnar eru framkvæmdar.

Svo tek ég undir hugleiðingar hv. fyrsta flutningsmanns um undir hvaða ráðuneyti þetta ætti að heyra. Ég er á því að þetta ætti að heyra undir dómsmálaráðuneytið.