atvinnuréttindi útlendinga o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir margt af því sem fram hefur komið hér í umræðunni um þetta frumvarp og ánægju þingmanna með efni þess. Ég er sammála því, ég tel að frumvarpið sé til verulegra bóta og framfara fyrir þá sem það fjallar um. Í öllum aðalatriðum geri ég ekki neinn ágreining um meginmarkmið frumvarpsins, ég held að það stefni til þess að betrumbæta þá löggjöf sem sett var fyrir fimm árum og stendur meira og minna á þeim grundvelli.
Þetta er öðrum þræði réttindamál og öðrum þræði kannski verndarmál. Þetta er réttindamál að því leyti að verið er að leitast við að búa til fyrir þá sem búa innan Evrópska efnahagssvæðisins vinnumarkað og löggjöf um för á milli landa og dvöl í öðru landi en heimalandi á þann veg að það líkist sem mest því sem er í heimalandi viðkomandi manns þannig að menn búi sem mest við aðstæður sem þeir eiga að venjast í heimalandi sínu innan þessa efnahagssvæðis. Þetta er svona Rómarríki sem verið er að endurvekja og menn þekkja frá umræðunni um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið á sínum tíma.
Ég er að mörgu leyti sammála þeirri stefnu, ég held að það sé til verulegra bóta fyrir einstaklinginn að leitast sé við að breyta veruleikanum frá hinum landamæralukta veruleika sem varð til á 19. öld en þó fyrst og fremst á 20. öld þar sem einstaklingurinn var mjög bundinn af hagsmunum ríkisins. Ríkið var fyrst og fremst að gæta sinna hagsmuna og löggjöfin endurspeglaði það. Lagðar voru tálmanir á athafnafrelsi og för einstaklinga á milli landa og athafnafrelsi þeirra innan annarra landa en sinna eigin. Með þessari stefnu hafa menn verið að reyna að brjóta niður þessi landamæri þannig að einstaklingurinn geti farið um eins og var áður fyrr, áður en ríkið þróaðist í þá átt sem það gerði í svo sterka miðstýrða heild og menn fóru að líta á hagsmunina út frá hagsmunum ríkisins og miklu síður út frá hagsmunum einstaklingsins. Mér finnst þessi Rómarsáttmáli og Evrópusambandsstefna að því leytinu æskileg og ég styð þau markmið að gera hlutina bærilegri fyrir einstaklingana. Það er væntanlega grundvallað á því að aukið frelsi einstaklingsins leiði til ávinnings og ekki bara fyrir hann heldur líka fyrir heildina. Það er væntanlega það sem hefur rekið menn áfram, menn hafa áttað sig á því að allir græða á þessari breytingu.
Við eigum ekki að lokast inni í landamærum þjóðríkjanna, ég held að það sé mjög varhugaverð þróun. Það leiðir til einangrunar, það leiðir til aðskilnaðar eftir landamærum, leiðir til þess að menn fara að skilgreina ólíkar þjóðir eða einingar hver gegn annarri. Ég held að menn eigi og Íslendingar hafi hag af því að vinna eftir þessari stefnu.
Svo er það hitt sjónarmiðið í málinu sem er vinnumarkaðssjónarmiðið eða verndarsjónarmiðið. Fram kemur á nokkrum stöðum í frumvarpinu að verið er að leggja áherslu á jafnvægi á vinnumarkaði, að framboð af fólki til að vinna að störfum verði ekki langt umfram það sem eftirspurn segir til um á hverjum tíma. Það er sem sé verið að vernda hagsmuni þeirra sem eru á innlendum vinnumarkaði. Mér finnst það að mörgu leyti lögmætir hagsmunir og eðlilegt að það hafi farið inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið á sínum tíma. Þar er ákvæði sem gerir stjórnvöldum kleift að grípa til aðgerða við tilteknar aðstæður sem geta komið upp og endurspegla mikið ójafnvægi á vinnumarkaði, vegna þess að ójafnvægi á vinnumarkaði vinnur gegn hagsmunum launþeganna eða einstaklinganna. Það sjá allir í hendi sér að ef atvinnurekendur geta ráðið til sín fólk sem er tilbúið til að vinna á öðrum kjörum en almennt gerist þá lækkar það einfaldlega lífskjörin. Við erum með þær aðstæður uppi á Evrópska efnahagssvæðinu með nýjum ríkjum inni í Evrópusambandinu, sem eru mörg hver með þjóðartekjur á mann langtum lægri en gerist og gengur í Vestur-Evrópuríkjunum. Þess vegna hafa verið sett inn ákvæði til þess að reyna að koma í veg fyrir að hægt sé að manna störf hér á landi með vinnuafli sem vinnur fyrir broti af þeim launum sem annars gilda í landinu, vinnumarkaðsákvæði til að verja launastigið og lífskjarastigið.
Ég held að við eigum að halda fast við það vegna þess að Íslendingar búa við vinnumarkað sem að mörgu leyti er miklu viðkvæmari en í mörgum öðrum löndum þar sem mikill munur er á umsömdum launum, taxtakaupinu, og því sem raunverulega er greitt. Því er mikið svigrúm til að nýta sér vilja fólks til að vinna á lægri kjörum en gerist á innlendum vinnumarkaði, fólks sem eftir sem áður lítur á þau lágu laun sem há laun miðað við það sem því stendur til boða í heimalandi sínu. Þetta er einstigið sem við verðum að feta, við getum ekki látið það gerast að innlendur vinnumarkaður verði brotinn niður. Við þurfum því að tryggja að á sama tíma og menn hafa opnað vinnumarkaðinn fyrir Evrópusambandslöndunum leiði sú opnun ekki til þess að lækka lífskjörin eða launastigið, launagreiðslurnar, á innlendum vinnumarkaði.
Ákvæði í frumvarpinu endurspegla þessi áform. Þó að þau eigi ekki við lengur um vinnumarkaðinn innan Evrópusambandsins vegna samningsins um EES eru samt öryggisákvæði í þeim samningi sem gera stjórnvöldum kleift að grípa inn í ef á þarf að halda til að tryggja að jafnvægisleysið hafi ekki slæm áhrif. En þessi ákvæði eru enn þá inni sem meginefni í löggjöfinni, eins og hv. þm. Pétur H. Blöndal kom inn á, gagnvart öðrum hlutum heimsins. Það er miklu stærri hluti, ætli það séu ekki um 6 milljarðar manna sem búa utan Evrópska efnahagssvæðisins en þar búa kannski 500 milljónir þannig að það er tólf sinnum fjölmennara svæði. Við sjáum það, eins og hv. þm. Pétur Blöndal benti á, að ef við hefðum það allt opið réðum við ekkert við að halda uppi því launastigi sem er á íslenskum vinnumarkaði. Menn þurfa því að hafa einhverjar takmarkanir til að tryggja að jafnvægið leiði ekki til lækkandi launa, það er það sem við þurfum að verja. Þess vegna er þetta skrifað inn í lagafrumvarpið og ítrekað tekið fram, m.a.s. í upphafi athugasemdanna, að áhersla sé lögð á mikilvægi þess að viðhalda jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. Ég tek alveg undir það, ég held að það sé sjónarmið sem við verðum að verja af fullum þunga.
Við eigum líka að líta á þessi mál, erlent vinnuafl, sem vinnumarkaðsmál eingöngu og varast að ræða um erlent vinnuafl á einhverjum öðrum og ómálefnalegum forsendum, eins og það að tengja þau sérstaklega við glæpi og afbrot eða eitthvað slíkt. Það eru ekki málefnalegar ástæður, engar sannanir eða vísbendingar hafa komið fram, sem hægt er að standa á, sem styðja með neinum hætti það sem stundum er haldið fram í þeim efnum. Ég lít því á þessi mál gagnvart erlendu vinnuafli á innlendum vinnumarkaði fyrst og fremst og kannski einvörðungu sem vinnumarkaðsmál til þess að tryggja að innlendur vinnumarkaður verði eins og hann hefur verið, að kaupgreiðslustigið falli ekki og menn verji það og noti löggjöfina til þess, því að það gildir gagnvart öllum þeim sem eru á innlendum vinnumarkaði, Íslendingum sem útlendingum. Ég held að það sé mjög mikilvægt að menn geri sér grein fyrir þessu. Í öllum meginatriðum liggja áherslur mínar og flokks míns saman við þetta stjórnarfrumvarp.
Ég vildi þó segja, virðulegi forseti, að ég er dálítið hallur undir sjónarmið hv. þm. Péturs H. Blöndals, mér finnst of langt gengið í því að loka innlendum vinnumarkaði fyrir fólki sem búsett er utan Evrópska efnahagssvæðisins. Það er greinilegt að við höfum allar heimildir til að ákveða það sjálf hvernig við höfum það og við sjáum það m.a. í frumvarpinu þar sem lagt er til að fólk sem býr í EFTA-ríkjunum, eins og t.d. Sviss, og Færeyjum, hafi sama aðgang að innlendum vinnumarkaði, en þetta eru hvort tveggja ríki utan Evrópusambandsins og bæði utan Evrópska efnahagssvæðisins. Það er því greinilegt að ekkert í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið kemur í veg fyrir að við ákveðum sjálf hversu víðtæk opnunin er gagnvart þjóðum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Mér finnst að lokunin sé of mikil.
Þá er ég með í huga að komið hefur til landsins töluvert af fólki á umliðnum áratugum, eins og frá Filippseyjum, Suður-Afríku, Taílandi, sem sest hefur að hér á landi og hefur í alla staði reynst hið prýðilegasta fólk og góðir þegnar en á í miklum erfiðleikum með að fá til sín ættingja og aðra sem vilja flytja til þeirra hingað til lands. Mér finnst því fólki gert of erfitt fyrir að fá til sín landa sína, ættingja eða aðra sem vilja flytja til þeirra. Ég hefði viljað rýmka opnunina fyrir þennan hóp, hefði viljað ganga lengra í þá átt og ég mun hreyfa þeim sjónarmiðum í félagsmálanefnd. Ég beini því til hæstv. félagsmálaráðherra að íhuga það með mér hvernig hægt væri að rýmka þessar reglur þannig að hóflegt væri en engu að síður til bóta fyrir þennan hóp sem ég ber fyrir brjósti og er mjög fjölmennur, t.d. á Vestfjörðum, þannig að ég þekki þetta mjög vel.
Ég tel líka, virðulegi forseti, að við þurfum að rýmka meira, opna Ísland, landið og vinnumarkaðinn, fólki sem hingað kemur vegna mannúðarsjónarmiða. Mér hefur löngum fundist að hér hafi gilt óþarflega strangar reglur og ríkt hafi óþarflega mikið aðhald í þeim efnum. Mér finnst stundum að of langt sé gengið í því, langt umfram það sem gerist meðal annarra evrópskra þjóða, að bægja frá landinu fólki sem vill koma hingað og býr við þannig aðstæður að það flokkast undir mannúðarástæður. Ég held að við ættum að skoða það að stíga þó ekki væri nema nokkur skref í þá átt þó að þau verði ekki mjög stór að þessu sinni.