störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það er rétt sem fram kom hjá málshefjanda að ímynd Íbúðalánasjóðs er mjög góð meðal almennings. Það er líka rétt sem hér var sagt að ákveðið var á sínum tíma að endurskoða starfsemi Íbúðalánasjóðs í kjölfar innrásar bankanna, eins og einhver sagði, á þennan markað. En ástæðan var sú að það komu tilmæli frá ESA um að okkur bæri að endurskoða þessa starfsemi. Skipuð var nefnd sem í voru fulltrúar frá þáverandi ríkisstjórn og áttu framsóknarmenn fulltrúa í nefndinni eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Niðurstaða þeirrar nefndar var í stórum dráttum sú að ekki skyldi breyta starfsemi Íbúðalánasjóðs. Sjóðurinn skyldi áfram gegna félagslegu hlutverki sínu og lána til íbúðarkaupa eins og áður hafði verið. Hins vegar var talið nauðsynlegt að í tímans rás yrði að breyta því hvernig að slíkum lánum væri staðið til að jafna samkeppnisstöðu milli Íbúðalánasjóðs og bankanna. Það var mat manna að fara yrði út í svokölluð sérvarin skuldabréf sem síðan hefur verið samin sérstök löggjöf um og samþykkt á þinginu. Það var vegna þess að ríkisábyrgðin gat ekki gengið upp í ljósi þess að bankarnir voru komnir inn á markaðinn. Hins vegar voru allir sammála um að Íbúðalánasjóður mundi starfa áfram og það hefur verið skoðun okkar og þarf ekki að blanda neinum hægri kreddum inn í þá umræðu.
Ljóst er að staða bankanna hefur veikst mjög mikið síðan þetta gerðist. Hlutverk þeirra í íbúðakaupalánum er orðið miklu veikara vegna þess að kjörin hjá bönkunum hafa versnað mikið en Íbúðalánasjóður hefur nú góð kjör í skjóli ríkisábyrgðar. Hins vegar þykir ljóst að íbúðalán munu ekki njóta sama trausts þegar kemur að einkunnagjöf og áður var og er það nú vandi bankanna í hnotskurn.