135. löggjafarþing — 52. fundur,  23. jan. 2008.

störf þingsins.

[13:51]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Örstutt leiðrétting. Það er því miður svo að Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft horn í síðu Íbúðalánasjóðs. Ég fagna yfirlýsingu formanns félagsmálanefndar, hv. þm. Guðbjarts Hannessonar, Samfylkingu, um það efni, og ég fagna því líka að breið samstaða skuli vera hér á þinginu um málefni Íbúðalánasjóðs af hálfu Samfylkingar, Frjálslyndra, Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Framsóknarflokksins, sem stóð dyggan vörð um þennan sjóð á síðasta kjörtímabili í erfiðu samstarfi um það efni við Sjálfstæðisflokkinn.

Og síðan að NATO. Ég fagna því sérstaklega að hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir skuli hafa vakið máls á yfirlýsingum fimm æðstu herforingja innan Atlantshafsbandalagsins (REÁ: Fyrrverandi.) sem birst hafa í erlendum fjölmiðlum, þar sem þeir hvetja til þess að NATO lýsi því yfir að það sé reiðubúið að grípa til kjarnorkuvopna að fyrra bragði.

Það er voveifleg þróun sem er að eiga sér stað innan þessa bandalags. Við höfum orðið vör við áherslubreytingar og heimurinn orðið vitni að því allt frá miðjum 10. áratug og fram á þennan dag, þar sem NATO er með miklu árásargjarnari tón en það var með áður, reiðubúið að grípa til vopna hvar sem er í heiminum ef einhverju aðildarríkjanna er ógnað. Og hvaða aðildarríki skyldi helst vera ógnað? Að sjálfsögðu hinu ranglátasta og árásargjarnasta, Bandaríkjunum. Þess vegna er NATO orðinn varasamur félagsskapur fyrir okkur. Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum aftur og aftur auglýst eftir umræðu hér á Alþingi um þessi grundvallarmál en ekki fengið hana.

Ég hvet til þess að við látum þessar yfirlýsingar NATO-hershöfðingjanna verða tilefni þess að við tökum umræðu um grundvallaratriði sem snerta öryggismál (Forseti hringir.) Íslendinga.