störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til þess að ítreka það sem ég vakti athygli á í fyrra máli mínu hér. Það er ekki nein umræða innan NATO um stefnubreytingar í kjarnorkuáætluninni. Þó að þessir fimm hershöfðingjar hafi þær hugmyndir uppi að NATO þurfi að vera tilbúið til þess að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði eru engar vísbendingar um að nein slík umræða sé að fara að þróast innan NATO-ríkjanna, þeirra sem geta breytt áætluninni. Ég vek athygli á því að um er að ræða fyrrverandi hershöfðingja og ef maður skoðar síðan þróunina sem hefur átt sér stað frá lokum kalda stríðsins þá hefur hún öll verið í hina áttina og mikil samstaða ríkt um það.
Stóra fréttin í þessari ályktun hinna fimm fyrrverandi hershöfðingja hjá NATO er mat þeirra á þeirri ógn sem heiminum stafar af þróun á alþjóðlegri vísu, ógn sem stafar af hryðjuverkahópum, ógn sem stafar af útbreiðslu gjöreyðingarvopna, ógn sem stafar af ástandinu í ýmsum heimshlutum þar sem er pólitískur óstöðugleiki. Ég held að það sé þar sem við þurfum að leggja eyrun við og gá að því hvort ástæða sé til að bregðast við því með ákveðnari hætti en gert er í dag. Og nota bene: Hershöfðingjarnir fjalla um fleira en það að NATO þurfi að vera tilbúið til að beita kjarnorkuvopnum ef ástæða þykir til. Þeir fjalla um það að NATO þurfi að skoða þann möguleika að falla frá einróma atkvæðagreiðslu, þeir vilja fara yfir í meirihlutaatkvæðagreiðslu til þess að taka mikilvægar ákvarðanir.
Þessa frétt má ekki slíta úr samhengi. Mér finnst það ábyrgðarhluti að gefa til kynna að af stað sé að fara einhver umræða innan NATO um að bandalagið hyggist fara að beita kjarnorkuvopnum (Forseti hringir.) vegna þeirrar þróunar sem orðin er. Svo er alls ekki.