skattlagning á tónlist og kvikmyndir.
Frú forseti. Ég ber upp fyrirspurn hv. þm. Katrínar Jakobsdóttur til fjármálaráðherra um skattlagningu á tónlist og kvikmyndir sem henni gafst ekki tækifæri til að bera upp áður en hún sjálf fór í leyfi. Það er vel þekkt, bæði hér á landi og annars staðar í hinum vestræna heimi, að fólk hleður niður tónlist og kvikmyndum af netinu í stað þess að kaupa sér slíka hluti og dreifir þeim jafnvel. Stór fyrirtæki á þessu sviði hafa lagst í dýrar málshöfðanir og nýlega var bandarísk kona dæmd fyrir niðurhalaða tónlist. Er það fyrsta mál þessarar tegundar sem fer fyrir dóm í Bandaríkjunum. Það ætti að vera ljóst að mjög erfitt er að framfylgja lögum sem banna niðurhal á tónlist og kvikmyndum en um leið eru flestir sammála um að fyrirtæki í þessum geira svo og listamenn verði af umtalsverðum fjárhæðum vegna niðurhals og dreifingar á netinu.
Þessi málefni hafa komið til umræðu í nágrannalöndum okkar og í Frakklandi var rætt um að fara þá leið að fella niður skatta á tónlist og kvikmyndum en taka í staðinn upp flatan skatt á háhraðatengingar. Það mál náði þó ekki í gegnum franska þingið og var fellt naumlega. Í æ fleiri Evrópulöndum er hins vegar rætt hvernig skapa megi sátt um þessi mál. Svipað má segja um Bandaríkin þar sem mikil umræða hefur verið um málin og má nefna sem dæmi að prófessor við Harvard-háskóla hefur reiknað það út að 6 dollara skattur á hvern tölvunotanda á mánuði eða um 300 kr. mundi bæta bæði kvikmynda- og plötufyrirtækjum allan þann skaða sem þau hafa orðið fyrir af ólögmætu niðurhali og ólögmætri dreifingu.
Skattlagningarhugmynd Bandaríkjamanna hefur mörgum þótt róttæk en ljóst má vera að ef lausn á að fást í málinu þurfa stjórnvöld að taka þátt í þeirri vinnu ásamt listamönnum og útgefendum. Höfundarréttarmál geta vissulega verið flókin en það að málin séu snúin og erfið viðureignar þýðir alls ekki að heppilegt sé að sleppa því að fjalla um þau, jafnvel þvert á móti.
Frú forseti. Nú þykist ég vita að um þetta mál séu skiptar skoðanir. Ýmis tæknileg útfærsluatriði við þetta eru flókin en verkefni þingsins er að móta lagaramma fyrir tónlistarmenn og fólk sem vill njóta afurða þeirra og því brýnt að þessi mál séu rædd hérlendis sem annars staðar. Ég vildi spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort til standi að endurskoða fyrirkomulag þessara mála hér á landi eða hvort sú skoðun hefur farið fram og menn hafi þá ekki séð neinar nýjar leiðir til að bregðast við núverandi ástandi. Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur ráðherra í hyggju að endurskoða fyrirkomulag skattlagningar á tónlist og kvikmyndir í ljósi þess að æ meira af tónlist og kvikmyndum er hlaðið niður af netinu?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir endurskoðun á þessari skattlagningu með þann möguleika í huga að niðurhal hætti að teljast ólöglegt en listamönnum verði jafnframt tryggðar sanngjarnar tekjur?