135. löggjafarþing — 53. fundur,  24. jan. 2008.

olíuhreinsistöð á Vestfjörðum.

[10:52]
Hlusta

umhverfisráðherra (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Það sem mér er kunnugt um fyrirætlanir og hugmyndir um olíuhreinsistöð einhvers staðar á Vestfjörðum er að tiltekið fyrirtæki sé áhugasamt um þennan rekstur, tiltekin sveitarfélög líka. Það liggur ekki fyrir hverjir eru á bak við þessar hugmyndir og hverjir muni fjárfesta í þeim. Ég hef engar slíkar upplýsingar.

Það sem ég veit hins vegar um svona rekstur er að hann mengar gríðarlega mikið. Það er mjög mikil losun gróðurhúsalofttegunda. Það er einnig mjög mikil önnur mengun, einhvers konar olíuleðja og svifryk auðvitað og annað af þeim toga sem fylgir slíkri starfsemi. Mér skilst að losun einnar svona olíuhreinsistöðvar eins og menn hafa rætt um mundi auka losun frá Íslandi, eins og það er reiknað í losunarbókhaldinu, um 30% miðað við þær losunarheimildir sem við höfum núna á árabilinu 2008–2012.

Allir vita að samkvæmt stefnumörkun ríkisstjórnarinnar stefnum við að því að draga saman losun gróðurhúsalofttegunda um 50–75% á næstu 40 árum. Það er ekkert annað í spilunum en samdráttur í losunarheimildum og að sjálfsögðu einnig markaður með losunarheimildir þar sem fyrirtæki greiða fyrir losunina.