135. löggjafarþing — 54. fundur, 29. jan. 2008.
tilkynning um dagskrá.
Upp úr kl. tvö í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram utandagskrárumræða um uppsagnir í fiskvinnslu og atvinnuöryggi í sjávarbyggðum. Málshefjandi er hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.